ESA vísar tveimur málum gegn Íslandi til EFTA-dómstólsins Atli Ísleifsson skrifar 28. september 2016 09:51 Úr þingsal. Vísir/Ernir
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur ákveðið að vísa tveimur málum gegn Íslandi til EFTA dómstólsins þar sem Ísland hefur ekki innleitt EES löggjöf innan tilskilinna tímamarka. Um að ræða reglugerð sem varðar öryggi og markaðssetningu á forefnum sprengiefna og tilskipun um vélar sem notaðar eru til að dreifa skordýraeitri. Í tilkynningu frá ESA segir að málaferlin varði EES reglur, sem innleiddar hafi verið í EES samninginn, en hafi ekki tekið gildi að landsrétti innan settra tímamarka. Vísun máls til dómstólsins er lokaskrefið í formlegu samningsbrotamáli ESA á hendur EFTA-ríki, en áður hefur Ísland verið upplýst um afstöðu stofnunarinnar og veittur kostur á að koma röksemdum sínum á framfæri sem og að ljúka málinu með því að innleiða viðeigandi löggjöf innan gildandi tímamarka. „Reglugerð 98/2013 varðar reglur um markaðssetningu og notkun forefna sprengiefna sem hægt er að misnota til ólöglegrar framleiðslu sprengiefna. Tilgangur reglugerðarinnar er að draga úr aðgengi einstaklinga að hættulegum forefnum sprengiefna. Reglugerðin felur meðal annars í sér að seljendum er skylt að tilkynna grunsamleg viðskipti með tiltekin forefni sem og önnur eftirlitsskyld efni. Reglugerðinni er því ætlað að bregðast við hugsanlegri hryðjuverkaógn og auka öryggi varðandi aðgengi að forefnum sprengiefna, sprengjugerðarefnum og tækni sem hryðjuverkamenn gætu misnotað. EFTA-ríkjunum bar að innleiða reglugerðina fyrir 1. ágúst 2015. Tilskipun 2009/127 er endurskoðun eldri tilskipunar um vélar sem notaðar eru til að dreifa skordýraeitri. Til dæmis sjálfknúnar vélar, vélar sem settar eru í ökutæki og þær sem settar eru í flugvélar til dreifingar. Gildir þetta jafnt fyrir atvinnutæki og tæki til einkanota. EFTA ríkjunum bar að innleiða tilskipunina fyrir 1. júní 2015,“ segit í tilkynningunni.
Tengdar fréttir Innleiðing EES-tilskipana: Ísland stendur sig enn verst allra Ísland hefur bætt innleiðingar gerða í EES-samningnum milli mælinga á enn langt í land. 6. október 2015 11:11 Ísland stendur sig ennþá verst Ísland stendur sig enn verst EFTA-ríkjanna þegar kemur að innleiðingu tilskipana í gegnum EES-samninginn. Frammistaða Íslands er sú versta á Evrópska efnahagssvæðinu öllu og ljóst að þörf er á frekari aðgerðum að mati eftirlitsstofnunar EFTA. 12. október 2015 07:00 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Sjá meira
Innleiðing EES-tilskipana: Ísland stendur sig enn verst allra Ísland hefur bætt innleiðingar gerða í EES-samningnum milli mælinga á enn langt í land. 6. október 2015 11:11
Ísland stendur sig ennþá verst Ísland stendur sig enn verst EFTA-ríkjanna þegar kemur að innleiðingu tilskipana í gegnum EES-samninginn. Frammistaða Íslands er sú versta á Evrópska efnahagssvæðinu öllu og ljóst að þörf er á frekari aðgerðum að mati eftirlitsstofnunar EFTA. 12. október 2015 07:00