Jón Gnarr tekur viðtal við borgarstjórann Lúðvík Einarsson Stefán Árni Pálsson skrifar 1. nóvember 2016 10:30 Lúðvík til vinstri og Jón til hægri.
Það nýjasta úr smiðju Jóns Gnarr er sjónvarpsþátturinn Borgarstjórinn sem hóf göngu sína á Stöð 2 þann 16. október. Að þættinum koma margir af fremstu gamanleikurum þjóðarinnar og leikur Jón borgarstjórann sjálfan, Lúðvík Einarsson. Jón Gnarr settist niður á dögunum og hreinlega tók viðtal við Lúðvík og hér að neðan má lesa það:Um hvað ertu að hugsa núna? Ég er að hugsa um borgina, fólkið sem í henni býr og velferð þess og öll þau tækifæri sem við eigumHvað fær þig til að hlæja? Skemmtilegar vísur eftir góða hagyrðingaHvað fær þig til að gráta?Ég grét mikið þegar ég meiddi mig þegar ég var ungur drengur. Of mikið stundum fannst mörgum.Hver er besta uppfinning allra tíma?Bílar og flugvélarÁttu þér fyrirmynd eða einhvern sem þú lítur upp til sem hefur kennt þér eða haft áhrif á þig?Það eru svo margir. Ég lít mikið upp til bænda og íslensks alþýðufólks.Hvar líður þér best og af hverju? Mér líður best uppí sveit, í nánum tengslum við náttúruna. Að heyra læk hjala og kind jarma og anda að sér fersku íslensku súrefni er mesta hamingja í heimiLúðvík er skrautlegur borgarstjóriHvar ertu núna?Ég er í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem ég á að vera!Af hverju á ferlinum ertu stoltastur og af hverju?Ég er stoltur af starfi mínu sem borgarstjóri í þágu íbúa Reykjavíkur.Hverju í lífinu ertu stoltastur af og af hverju?Ég er stoltur af því að hafa, fyrir nokkrum árum, stokkið útí Laxá í Laxárdal til að bjarga litlum hvolpi. Stúlkan sem átti hann var mér líka ákaflega þakklát. Þetta varð heilmikið blaðamál. Mér fannst þetta ekki tiltökumál og gerði mér ekki grein fyrir hættunni. Mér finnst bara svo gaman að gleðja börnHvað finnst þér verst við samtímann?Ég hef oft áhyggjur af öllum þessum hraða sem fylgir nútímanum. Fólk er of mikið niðursokkið í snjallsímanum. Fólk er hætt að kunna að tala saman nema í SMS skilaboðum. Það er ekki góð þróun.Hvað finnst þér best við samtímann? Ég dáist mjög að unga fólkinu á Íslandi og þeir ungu og efnilegu menn sem hafa kjarkinn og þorið til að halda merki Íslands á lofti inní framtíðina. Æskan er auðlind til framtíðarHvert er besta ráð sem þér hefur verið gefið? Skemmtilegasta fólk sem ég hitti eru gamlir bændur. Þeir luma alltaf á góðum ráðum. Gamall bóndi sagði eitt sinn við mig að lífið væri einsog konfekt kassi, maður getur valið sér bita. Þeir eru ekki allir jafn góðir en enginn er óætur!Tekur sig vel út á skrifstofunniHver er mesta áhættan sem þú hefur tekið?Þegar ég henti mér útí ána til að bjarga hvolpinum.Hver er fyrsta minningin sem þú átt? Þegar ég sá í fyrsta skipti Íslenska sveit.Hvað er það rómantískasta sem þú hefur gert?Þegar ég var í viðskiptafræði í Háskólanum bauð ég stúlku sem hét María á stefnumót og fór með hana á réttaball í Aratungu. Ég hafði talað við hljómsveitina og án nokkurs fyrirvara byrjuðu þeir að spila Þórsmerkurljóð og þegar söngvarinn söng viðlagið María, María þá benti hann á hana.Ertu andlega þenkjandi?Já, ég mundi segja það. Mér finnst gott að fara í kirkjuEf þú mættir breyta einu í heiminum, hvað væri það? Mér finnst heimurinn svo góður að ég vil ekki breyta neinuErtu sáttur við nafnið þitt? Mjög svoHver er dýrasti hlutur sem þú hefur keypt?Ætli það sé ekki húsið mittHvert er uppáhaldsappið þitt?Ég nota snjallsíma mikið og öll öppin sem með honum fylgja.Besta bíómynd allra tíma?Braveheart með kevin CostnerHvernig skemmtir þú þér?Með góðum vinum í faðmi Íslenskrar náttúruHvernig kaffi drekkur þú?Ég vil gamalt og gott Íslenskt kaffi, með mjólk og sykriFerðu einn í bíó?Það kemur fyrir. Fyrir hverju fellur þú alltaf á matseðli? Íslensku lambakjöti, sérstaklega kótelettum Rautt eða hvítt? Ég er ekki mikill vín-maður en fæ mér rautt með kjöti en hvítt með fiski
Mest lesið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Leikarapar selur í 101 Lífið Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Söngvari YMCA látinn Tónlist Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Fleiri fréttir Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sjá meira