Notendum fjárhagsaðstoðar borgarinnar fækkar Snærós Sindradóttir skrifar 7. júní 2016 06:00 Ilmur Kristjánsdóttir er formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar. Hún segir að nú sé borgin að sjá árangur af miklu starfi með notendum fjárhagsaðstoðar. Fréttablaðið/Stefán
Nærri fjórðungi færri nýttu sér fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar á fyrsta ársfjórðungi 2016 en á sama tíma árið 2015. Samtals fækkaði þeim sem nýttu sér aðstoðina úr 1924 í 1.469 manns. Í tilkynningu frá borginni sagði að heildarútgjöld Reykjavíkurborgar hafi lækkað um ríflega 20 prósent vegna fækkunarinnar. Hið rétta er að útgjöld borgarinnar vegna fjárhagsaðstoðar lækkuðu sem nemur ofangreindri prósentutölu. Ilmur Kristjánsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir að árangurinn sé tilkominn vegna átaks borgarinnar. „Það er að skila sér árangur af einstaklingsmiðaðri nálgun. Þetta er tvíþætt, þeim sem leita aðstoðar er vísað fyrr til Vinnumálastofnunar en svo er nú að skila sér árangur í hópi langtíma notenda.“ Samkvæmt skýrslu um fjárhagsaðstoð borgarinnar nýta 15 prósent sér fjárhagsaðstoð til framfærslu í 12 mánuði eða lengur. Í Breiðholti búa hlutfallslega flestar fjölskyldur með fjárhagsaðstoð. Þar á eftir koma hverfi miðborgar og Hlíða. Athygli vekur að árið 2015 voru meira en 2,5 sinnum fleiri með fjárhagsaðstoð í Breiðholti en í Vesturbæ. Hæsta menntunarstig borgarinnar er í Vesturbæ þar sem 24 prósent eru með grunnskólapróf eða minni menntun. 43 prósent íbúa í Vesturbæ eru með háskólapróf á móti 19 prósentum í Breiðholti. „Það er átak að koma fólki út á vinnumarkað. Öll úrræðin sem eru í boði, Grettistak og kvenna- og karlasmiðja, og það að hlúa að fólki er að skila sér,“ segir Ilmur. Bætt atvinnuástand skili sér líka í færri notendum fjárhagsaðstoðar. „Núna erum við að byrja að uppskera árangur af því að það er búið að vera í gangi náin vinna með fólki. Fólk er að skila sér heilla út í atvinnulífið og helst þar. Þannig að við erum að fækka langtímanotendum.“Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 7. júní 2016
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira