Þurftu að kaupa gögn um sjúkrahótel Sveinn Arnarsson skrifar 26. janúar 2016 07:00 Sjúkrahótelið í Ármúla á að hjálpa til við að útskrifa sjúklinga hraðar af Landspítalanum. Það hefur ekki gengið eftir að mati spítalans. vísir/anton
Forsvarsmenn LSH segja alrangt að haft hafi verið samráð við spítalann í aðdraganda útboðs um sjúkrahótel í byrjun árs 2015 eins og framkvæmdastjóri sjúkrahótelsins við Ármúla hefur haldið fram. LSH hafi á endanum þurft að kaupa útboðsgögn eins og aðrir verktakar til að átta sig á útboðinu. Kolbrún Víðisdóttir, framkvæmdastjóri sjúkrahótelsins, segir hótelið ekki geta lagað vanda Landspítalans. Sjúklingar sem komi á sjúkrahótelið séu í mörgum tilfellum veikari en þeir ættu að vera samkvæmt samningum Því sé erfitt að halda áfram samstarfi. Einnig segir hún gagnrýni í garð sjúkrahótelsins ómálefnalega og byggða á sandi. „Samráð var haft við alla aðila við gerð síðasta útboðs,“ segir Kolbrún. „Fráflæðisvandamál LSH er vandi sem við tökum þátt í að leysa og hjá okkur eru um 20 til 30 gestir á hverjum sólarhring en 70 til 80 prósent þeirra koma frá Landspítalanum. Við getum hins vegar ekki tekið á móti mjög veiku fólki þar sem Landspítalinn er ekki með hjúkrun hér nema til 20.00 á kvöldin.Kolbrún Víðisdóttir, framkvæmdastjóri Heilsumiðstöðvarinnar.vísir/HAGÞessari fullyrðingu eru forsvarsmenn spítalans ósammála. „Landspítali var þátttakandi í undirbúningsvinnu vegna útboðs framan af,“ segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri flæðisviðs Landspítala. „Hins vegar fengu fulltrúar Landspítala í undirbúningshópnum ekki fundarboð á síðustu fundi hópsins sem svo skilaði af sér fullkláruðum útboðsgögnum um sumarið. Landspítali sá því ekki lokaútboðsgögn og þegar útboðið var auglýst keypti Landspítali útboðsgögnin,“ segir Guðlaug Rakel. Atriði sem LSH lagði áherslu á hafi ekki verið inni í útboðinu. „Landspítali fór raunar fram á að útboðið yrði stöðvað í ljósi þessa, en svo varð ekki. Það útboð sem svo fór fram var ekki í samræmi við væntingar og óskir Landspítala, enda fengu mikilvæg atriði sem Landspítali lagði áherslu á ekki hljómgrunn í hinu birta útboði . Þetta kom verulega á óvart.“
Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Fleiri fréttir Hólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi Efnaleki á Óseyri og fólk beðið um að halda sig fjarri Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla eldislaxi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Sjá meira