Ráðherra um deilur Landspítala og Sjúkratrygginga: „Dapurt hvernig fyrir þessu máli er komið“ Birgir Olgeirsson skrifar 26. janúar 2016 16:27 Kristján Þór Júlíusson heilbirgðisráðherra. „
Það er heldur dapurt hvernig fyrir þessu máli er komið,“ segir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra í samtali við Vísi um deilur Sjúkratrygginga Íslands og Landspítalans. Ríkisendurskoðun birti í dag skýrslu um samninga ríkisins vegna sjúkrahótels í Ármúla. Hafa þessar deilur staðið yfir um nokkurra ára skeið og telur Ríkisendurskoðun þetta ósætti ótekt og hvetur velferðarráðuneytið til að höggva á þá hnúta sem komnir eru á málið. Jafnframt þurfi að marka skýra stefnu um eðli og rekstur sjúkrahótela og tryggja samræmi í samningum um rekstur og þjónustu slíkra hótela. Kristján Þór tekur undir þessa niðurstöðu Ríkisendurskoðunar og segir ráðuneytið hafa hafið vinnu við að leysa þetta mál. „Ég gekk í það strax um helgina að biðja ráðuneytið um að funda með Landspítalanum og Sjúkratryggingum og fara yfir málin með þeim,“ segir Kristján Þór. Hann segir ráðuneytið ekki hafa mjög langan tíma til að fá einhverja niðurstöðu í málið. „Það er hins vegar algjörlega ótækt eins og kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar að tvær ríkisstofnanir skuli standa í opinberum deilum um verkefni eins og þetta. Það er ekki æskilegt.“Kristján Þór var einnig tekinn tali í kvöldfréttum Stöðvar 2 um málið:Í skýrslu Ríkisendurskoðunar er fjallað um samninga sem gerðir hafa verið vegna starfsemi sjúkrahótels við Ármúla í Reykjavík. Sjúkrahótel eru tímabundinn dvalarstaður fyrir sjúklinga sem þurfa heilsu sinnar vegna að dvelja fjarri heimili sínu vegna rannsókna og/eða meðferðar en þurfa ekki á sjúkrahúsdvöl að halda.Hafa tvívegis samið við einkafyrirtæki Sjúkratryggingar Íslands hafa á undaförnum árum tvívegis samið við einkafyrirtæki um rekstur umrædds sjúkrahótels. Fyrst árið 2011 við fyrirtækið Sinnum ehf. og svo aftur árið 2015 við Heilsumiðstöðina ehf. og Sinnum ehf. Landspítalinn átti aðild að fyrri samningnum sem verkkaupi. Auk þess skyldi hann veita hjúkrunarþjónustu á sjúkrahótelinu. Árið 2015 gerðu Sjúkratryggingar og Landspítalinn með sér sérstakan samning um þessa þjónustu. Í skýrslunni kemur fram að Landspítalinn hafi allt frá árinu 2011 gert margvíslegar athugasemdir við aðstöðu, aðbúnað og efndir rekstraraðila á samningunum. Sjúkratryggingar hafi talið þær tilefnislausar og stofnanirnar deilt opinberlega vegna þessa. Ríkisendurskoðun telur þetta ótækt og hvetur velferðarráðuneytið til að höggva á þá hnúta sem komnir eru á málið. Þá hvetur stofnunin ráðuneytið til að marka skýra stefnu um eðli og rekstur sjúkrahótela/sjúklingahótela og kanna hvort rétt sé að fella starfsemi þeirra undir lög um heilbrigðisþjónustu.Deilan snýst um hjúkrun og aðhlynningu Fram kemur að deila Sjúkratrygginga og Landspítala snúist m.a. um hjúkrun og aðhlynningu þeirra sem dvelja á sjúkrahótelinu. Sjúkratryggingar bendi á að sjúklingar eigi að vera sjálfbjarga þegar þeir innritast á hótelið. Landspítalinn og rekstraraðilar sjúkrahótelsins telji á hinn bóginn að sumir sjúklingar sem þangað komi þurfi mikla aðstoð og sérhæfða meðferð. Ríkisendurskoðun vekur athygli á að um þetta sé líka ósamræmi milli samninga Sjúkratrygginga við annars vegar rekstraraðila og hins vegar Landspítalann. Ríkisendurskoðun beinir því til Sjúkratrygginga að eyða þessu ósamræmi.Þörfin fyrir hjúkrun aldrei metin Fram kemur í skýrslunni að raunveruleg þörf sjúklinga fyrir hjúkrun og aðhlynningu (hjúkrunarþyngd) hafi aldrei verið metin. Ríkisendurskoðun telur mikilvægt að úr þessu verði bætt svo að ekki þurfi að deila um ástand og þjónustuþörf sjúklinganna. Jafnframt beinir stofnunin því til velferðarráðuneytisins að það tryggi að upplýsingar um starfsemi sjúkrahótela, m.a. hjúkrunarþyngd og fjölda gistnátta, séu skráðar með samræmdum hætti. Þannig verði unnt að meta þjónustu þeirra og hagkvæmni rekstrarins.Starfsemin leggst af í lok apríl að öllu óbreyttu Í skýrslunni er bent á að skilgreining á sjúkrahóteli í reglugerð sé ekki í samræmi við starfsemi slíkra hótela. Einnig hafi gjaldskrá reglugerðarinnar verið óbreytt frá árinu 2010. Ríkisendurskoðun hvetur velferðarráðuneytið til að endurskoða reglugerðina (nr. 207/2010). Er þess getið að nýverið sögðu rekstraraðilar sjúkrahótelsins í Ármúla upp samningi sínum við Sjúkratryggingar og mun starfsemi sjúkrahótelsins því að öllu óbreyttu leggjast af í lok apríl 2016. Að mati Ríkisendurskoðunar þarf þessi niðurstaða ekki að koma á óvart. Stofnunin hvetur velferðarráðuneyti til að eyða deilum Sjúkratrygginga og Landspítala og koma málum í viðunandi horf.
Tengdar fréttir Segir upp samningnum um gistingu og hótelþjónustu Sjúkrahótelsins Heilsumiðstöðin hefur sagt upp samningi sínum við Sjúkratryggingar um gistingu og hótelþjónustu Sjúkrahótelsins í Ármúla. 22. janúar 2016 19:30 Árni Páll segir samning um sjúkrahótel hafa verið sniðinn að þörfum eigenda en ekki þjóðarinnar „Hvaða hóteleigandi vill ekki vera í aðstöðu til að láta ríkið borga hjá sér öll þau herbergi sem annars standa tóm?“ 24. janúar 2016 14:40 Þurftu að kaupa gögn um sjúkrahótel Landspítali þurfti, líkt og aðrir verktakar, að kaupa útboðsgögn um sjúkrahótel í fyrra til að öðlast upplýsingar. Framkvæmdastjóri sjúkrahótelsins segir samráð hafa átt sér stað í aðdraganda útboðs. 26. janúar 2016 07:00 Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Innlent Útilokað að hundur sem týndist fyrir 38 árum sé sá sami og fannst við Langjökul Innlent Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Innlent Fleiri fréttir Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Útilokað að hundur sem týndist fyrir 38 árum sé sá sami og fannst við Langjökul Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Sjá meira
Segir upp samningnum um gistingu og hótelþjónustu Sjúkrahótelsins Heilsumiðstöðin hefur sagt upp samningi sínum við Sjúkratryggingar um gistingu og hótelþjónustu Sjúkrahótelsins í Ármúla. 22. janúar 2016 19:30
Árni Páll segir samning um sjúkrahótel hafa verið sniðinn að þörfum eigenda en ekki þjóðarinnar „Hvaða hóteleigandi vill ekki vera í aðstöðu til að láta ríkið borga hjá sér öll þau herbergi sem annars standa tóm?“ 24. janúar 2016 14:40
Þurftu að kaupa gögn um sjúkrahótel Landspítali þurfti, líkt og aðrir verktakar, að kaupa útboðsgögn um sjúkrahótel í fyrra til að öðlast upplýsingar. Framkvæmdastjóri sjúkrahótelsins segir samráð hafa átt sér stað í aðdraganda útboðs. 26. janúar 2016 07:00
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“