Sigur PSG í Meistaradeildinni yrði sögulegur fyrir Karabatic Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. maí 2016 15:00 Nicola Karabatic er sigursæll leikmaður. vísir/getty
Úrslitahelgin í Meistaradeildinni fer fram 28.-29. júní en þar berjast fjögur bestu lið álfunnar um stærsta bikarinn sem í boði er. PSG mætir Kielce í undanúrslitum og Kiel mætir Veszprém en allir leikirnir verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Nicola Karabatic, leikmaður Paris Saint-Germain, getur um aðra helgi orðið fyrsti leikmaðurinn sem vinnur Meistaradeildina með fjórum mismunandi félögum og einnig orðið sá fyrsti til að verja titilinn eftir að Final Four-fyrirkomulagið var sett á laggirnar. Síðan byrjað var að spila undanúrslitin og úrslitaleikinn sömu helgina í stað þess að liðið mættust heima og að heima í úrslitarimmu árið 2010 hefur engu liðið tekist að verja titilinn. Kiel vann 2010 og 2012, Barcelona 2011 og 2015, Hamburg 2013 og Flensburg 2014. Karabatic var lykilmaður í liði Barcelona sem varð Evrópumeistari í fyrra og var hann einnig útnefndur besti leikmaður úrslitahelgarinnar áður en hann skipti yfir til PSG. Nú getur hann orðið fyrsti maðurinn til að verja titilinn og unnið Meistaradeildina með fjórða félaginu. Hann vann meistaradeildina með Montpellier 2003, Kiel 2007 og Barcelona í fyrra. Thierry Omeyer, markvörður PSG, er einnig mjög sigursæll í Meistaradeildinni en hann getur með sigri franska liðsins um aðra helgi orðið tólfti maðurinn sem vinnur Meistaradeildina fimm sinnum. Omeyer vann Meistaradeildina með Montpellier ásamt Karabatic 2003 og svo þrisvar sinnum til viðbótar sem markvörður Kiel. PSG er talið sigurstranglegast ásamt Veszprém þetta árið. Spænski Úkraínumaðurinn Andrei Xepkin er sigursælasti leikmaður Meistaradeildarinnar frá upphafi en hann vann hana sjö sinnum; sex sinnum með Barcelona og einu sinni með Kiel. Barcelona vann Meistaradeidlina fimm ár í röð frá 1996 til 2000 og eru leikmenn þess liðs því eðlilega margir ofarlega á listanum yfir þá sigursælustu í sögu Meistaradeildarinnar. Markverðir Börsunga á þeim tíma; Svíinn Tomas Svensson og spænski landsliðsmarkvörðurinn David Barrufet, eru næst sigursælastir í Meistaradeildinni með sex titla ásamt Hvít-Rússanum Sierhei Rutenka.Meira um þetta má lesa hér.
Handbolti Mest lesið Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Ísland - Búlgaría | Tengir landsliðið saman tvo sigra? Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn Króatía - England | Er enska liðið búið að finna taktinn? Fótbolti „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Fótbolti Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Fleiri fréttir Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Sjá meira