Ráðgjöf Hafró leyfir veiði á 224 hrefnum á ári Svavar Hávarðsson skrifar 14. júní 2016 06:00 Hvalur hf., hóf hvalveiðar að nýju 2006, en þær gætu verið úr sögunni að óbreyttu. vísir/daníel
Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar er að árlegar veiðar á hrefnu næstu þrjú árin, 2016 til 2018, verði ekki meiri en 224 dýr á íslenska landgrunnssvæðinu, eins og segir í skýrslu stofnunarinnar um ástand nytjastofna á Íslandsmiðum 2015/2016 og aflahorfur fiskveiðiárið 2016/2017. Ráðgjöfin er byggð á úttektum vísindanefnda Norður-Atlantshafs sjávarspendýraráðsins (NAMMCO) og Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC). Hrefnuveiðar hafa undanfarin ár verið innan við helmingur af ráðlögðum hámarksfjölda. Flestar hrefnur hafa verið veiddar í Faxaflóa utan afmarkaðs hvalaskoðunarsvæðis. Árið 2015 veiddust 36 hrefnur. Stefnt er að því að viðamikilli úttekt vísindanefndar IWC á hrefnustofnum Norður Atlantshafs ljúki árið 2016, en slíkar úttektir fara fram á sex til átta ára fresti. Árið 2017, á grundvelli þeirrar úttektar ásamt nýjum gögnum úr hvalatalningum 2015–2016, mun verða veitt ráðgjöf til lengri tíma. Þá ráðleggur Hafró að árlegar veiðar á langreyði árin 2016 og 2017 verði ekki meiri en 146 dýr á veiðisvæðinu milli Austur-Grænlands og Íslands. Langreyði hefur fjölgað jafnt og þétt við Ísland frá upphafi hvalatalninga árið 1987 og var fjöldinn í síðustu talningu (2007) sá hæsti síðan talningar hófust. Veiðar á langreyði hafa síðastliðin ár verið nálægt ráðlagðri hámarksveiði, að undanskildum árunum 2011 og 2012 þegar engin veiði var vegna náttúruhamfara í Japan sem er helsta útflutningslandið. Árið 2015 veiddust 155 langreyðar. Forsvarsmenn Hvals hf., gáfu það út í vetur að skip fyrirtækisins fara ekki til veiða í sumar. Ástæðan eru aðferðir Japana við rannsóknir á kjötinu, og sagði Kristján Loftsson í viðtali við Morgunblaðið að breytist þær ekki sé hvalveiðum sjálfhætt.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 14. júní.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira