Fyrrum slökkviliðsmaður stöðvaði með snarræði olíuleka í Skagafirði Gissur Sigurðsson skrifar 14. júní 2016 07:19 Olíuflutningabíll með 28.900 lítra af gasolíu innanborðs hafnaði á hvolfi utan vegar við Höskuldsstaði í Skagafirði í gærkvöldi. Vísir/Brunavarnir Skagafjarðar
Fyrrverandi slökkviliðsmaður, sem kunni til verka, gat með snarræði stöðvað olíuleka úr stórum fulllestuðum olíubíl með tengivagni sem valt á hvolf á móts við bæinn Höskuldsstaði í Skagafirði í gærkvöldi. Maðurinn átti þarna leið um fyrir tilviljun. Allt lið frá Brunavörnum Skagafjarðar var svo kallað á vettvang ásamt lögreglu og sjúkrabíl, sem flutti ökumanninn á heilsugæslustöð, þar sem hann naut aðhlynningar, en vitni segja að það hafi verið með ólíkindum hvað hann slapp vel frá slysinu. Dælu - og tankbílar voru kallaðir út til þess að tæma geyma bílsins og vagnsins og síðan tóku kranabílar við og komu bílnum og vagninum upp á dráttarvagna upp úr miðnætti og fjarlægðu þá. Talið er að aðeins 300 til 15 hundruð lítrar af svonefndri flotaolíu, eða skipaolíu, hafi lekið út í jarðveginn og var olíublautur jarðvegur þegar fjarlægður. Vettvangur verður kannaður nánar í dag og meiri jarðvegur fjarlægður ef ástæða þykir til. Ekkert vatnsból er í grenn við slysstaðinn. Ekki liggur fyrir hversvegna ökumaðurinn missti stjórn á bílnum.
Tengdar fréttir Olíuflutningabíll hafnaði utan vegar í Skagafirði Með hátt í þrjátíu þúsund lítra af gasolíu innanborðs. Umhverfisáhrif metin á morgun. 13. júní 2016 22:35 Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Fleiri fréttir „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin Sjá meira
Olíuflutningabíll hafnaði utan vegar í Skagafirði Með hátt í þrjátíu þúsund lítra af gasolíu innanborðs. Umhverfisáhrif metin á morgun. 13. júní 2016 22:35