Lífið

Flýgur um brekkurnar á sérsmíðuðum dróna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Neistat er einn sá vinsælasti á YouTube.
Neistat er einn sá vinsælasti á YouTube.
Casey Neistat er nokkuð skemmtileg YouTube stjarna og tekur hann oft upp á því að gera allskonar vitleysu til framleiða eins vinsælt myndband og hann getur.

Á dögunum  fór hann í mjög skemmtilega flugferð og sýndi áhorfendum hvernig það er að flúgja á fyrsta farrými með Emirates-flugfélaginu.

Sjá einnig: Sjáðu hvernig er að ferðast á fyrsta farrými með Emirates: Fjórtán tíma ferðalag í himnaríki

Í nýjasta myndbandinu fer hann á alveg ótroðnar slóðir en hvergi í heiminum eru seldir drónar sem bera manneskju.

Neistat og samstarfsmenn smíðuðu aftur á móti einn slíkan og átti dróninn að aðstoða Neistat við að að renna sér á snjóbretti. Það heppnaðist ekki betur en svo að Neistat brunaði um brekkurnar í Colorado og gat jafnvel farið upp þær einnig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×