Héraðsdómarar hafa ekki rætt skráningu Jóhann Óli Eiðsson skrifar 22. desember 2016 07:00 42 héraðsdómarar starfa við dómstóla landsins. Flestir starfa við Héraðsdómstólinn í Reykjavík. vísir/gva
Héraðsdómarar hafa ekki rætt hvort, og með hvaða hætti, gera eigi upplýsingar um hagsmunatengsl þeirra opinberar eður ei. Málið verður líklega tekið fyrir á nýju ári. Fyrir viku tilkynntu dómarar við Hæstarétt að þeir hygðust, frá og með áramótum, gera upplýsingar um hagsmunatengsl sín aðgengilegar á vef dómstólsins. Við ákvörðunina mun rétturinn taka mið af fyrirmælum laga um dómstóla. Talsvert var rætt um hagsmunatengsl dómara í kjölfar þess að fjölmiðlar fjölluðu um hlutabréfaeign hæstaréttardómara. Fréttablaðið sendi fyrirspurn til dómstjóra héraðsdómstóla landsins. Í svörum þeirra kom fram að ekki væri á valdi dómstjóra að taka einhliða ákvörðun um að fylgja fordæmi Hæstaréttar í þessu efni. Hins vegar voru þeir fæstir í vafa um að málefnið yrði rætt innan dómarastéttarinnar á komandi ári en þá líklega með milligöngu Dómarafélags Íslands (DÍ). Svör frá héraðsdómum Norðurlands eystra, Vestfjarða, Vesturlands og Suðurlands höfðu ekki borist þegar fréttin fór í prentun. Í svari Jóns Höskuldssonar, formanns dómstólaráðs, kemur fram að líklega sé aðkoma ráðsins langsótt með hliðsjón af lögbundnu hlutverki þess. Efnið hafi ekki verið rætt á vettvangi ráðsins en það verði gert á næsta fundi þess sem haldinn verður 4. janúar. „Það þarf meðal annars að kanna hvernig þetta er gert í öðrum löndum. Í fljótu bragði virðist mér dómarar Hæstaréttar ganga mjög langt með sinni birtingu,“ segir Skúli Magnússon en hann gegnir formennsku í DÍ. Við ákvörðun sem þessa þurfi að horfa ýmissa atriða að mati Skúla. Nauðsynlegt sé að ákveða hvort eitt skuli yfir alla dómara ganga eða hvort hæstaréttardómarar þurfi að lúta strangari reglum. Þá sé óljóst hvort setja þurfi reglur um efnið eða dómarar geti ákveðið þetta einhliða að eigin frumkvæði. „Ég á von á því að þetta mál verði tekið upp innan Dómarafélagsins,“ segir Skúli. Ekki liggur fyrir hvernig því verður hagað, hvort boðað verði til almenns félagafundar eða hvort málið verði fyrst tekið upp í stjórn félagsins. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól Sjá meira