Berst fyrir lífinu í Primaloft úlpu á setustofunni sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 29. desember 2016 14:20 Ekki er vitað hversu lengi faðir Jóns Björgvins verður inni á setustofu. Unnið er að því að koma honum í herbergi. mynd/jón björgvin
Jón Björgvin Björnsson, sonur krabbameinssjúks manns, kom að föður sínum í gær þar sem hann lá inni á ískaldri setustofu á krabbameinsdeild Landspítalans. Faðir hans hafði þá legið inni á gjörgæsludeild í öndunarvél í níu daga og barist fyrir lífi sínu. Jón Björgvin segir ástandið á spítalanum ferlegt. „Hann var í Primaloft úlpunni sinni þegar ég kom í gærkvöldi og hafði verið í henni allan daginn. Þetta herbergi er ekkert hitað en ofnarnir voru settir í gang þegar hann kom þangað um hádegið í gær. Hann er búinn að grennast töluvert, enda búinn að vera í miklum veikindum, og hefur orðið fyrir miklum blóðmissi. Þannig að það er ekkert auðvelt fyrir hann að halda á sér hita,“ segir Jón Björgvin, en RÚV greindi fyrst frá.Óttast frekari veikindi Jón Björgvin segist óttast það að pabbi hans fái lungnabólgu sökum kuldans. „Hann fékk líka blóðtappa í lungun, hann hefur orðið fyrir blóðmissi og hann var í öndunarvél en þá er mikil hætta á að hann fái lungnabólgu – svo ég var ekki beint sáttur þegar ég sat hjá honum í gær.“ Setustofunni hefur verið lokað af á meðan faðir Jóns liggur þar, sem Jóni þykir ekki síður gagnrýnivert, enda sé með þessu búið að loka á aðgang sjúklinga að rýminu. „Ég kom þarna í gær og þetta er bara hlægilegt. En hann var spurður og hann er tilbúinn til þess að vera kurteis við sína hjúkrunarkonu og annað fólk sem hefur hugsað vel um hann. Hann vill ekki segja neitt neikvætt við þau.“Læti í þokkabót Þá segir Jón Björgvin að í ofanálag sé verið að byggja sjúkrahótel beint fyrir framan glugga setustofunnar, og að því fylgi tilheyrandi hávaði og röskun. Faðir hans geti því lítið hvílst. „Honum finnst þetta auðvitað ferlegt að þurfa að liggja þarna og vildi helst komast heim til sín. En hann er ekki í neinu ástandi til þess að fara heim og verður að vera þarna fram yfir áramót.“ Jón Björgvin segist hafa rætt við starfsfólk spítalans, sem ætli að reyna að finna lausn á málinu. Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir birti á dögunum myndir frá Landspítalanum þar sem sjá má leka, myglu og bilaða lyftu, svo fátt eitt sé nefnt, en nýjustu færslu hans má sjá hér fyrir neðan.
Tengdar fréttir Fjöldi bygginga LSH myglu að bráð Landspítalinn segir ekki nægilega mikið gætt að endurbyggingu húsnæðis spítalans sem liggi undir skemmdum vegna raka og myglu. Að mati framkvæmdastjóra rekstrarsviðs vanti upp á að geta tekið á málum. 17. desember 2016 07:00 Lækna-Tómas gagnrýnir stjórnvöld: ,,Er ekki góðæri?'' Tómas tók myndir sem sýna hve lítið pláss er fyrir sjúklinga á Landspítalanum. 18. desember 2016 13:07 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Sjá meira
Fjöldi bygginga LSH myglu að bráð Landspítalinn segir ekki nægilega mikið gætt að endurbyggingu húsnæðis spítalans sem liggi undir skemmdum vegna raka og myglu. Að mati framkvæmdastjóra rekstrarsviðs vanti upp á að geta tekið á málum. 17. desember 2016 07:00
Lækna-Tómas gagnrýnir stjórnvöld: ,,Er ekki góðæri?'' Tómas tók myndir sem sýna hve lítið pláss er fyrir sjúklinga á Landspítalanum. 18. desember 2016 13:07