Fjöldi bygginga LSH myglu að bráð Sveinn Arnarson skrifar 17. desember 2016 07:00 Forsvarsmenn spítalans segja byggingar liggja undir skemmdum. Vísir/GVA
Rakaskemmdum og myglutilfellum í húsum Landspítalans er ekki sinnt að fullu vegna fjárskorts að mati Landspítalans. Stjórnvöldum er árlega gerð grein fyrir stöðunni og segja stjórnendur Landspítalans um 1,2 milljarða aukalega þurfa í viðhaldsverkefni á næsta ári.Ráðstefna um þróun fasteignamarkaðar og horfur. Ingólfur Þórisson„Við erum að fá til viðhalds og endurbóta um 850 milljónir króna en fjárþörfin samkvæmt okkar bókum og ítarlegum rannsóknum EFLU verkfræðistofu er um tveir milljarðar til að laga það húsnæði sem er rakaskemmt og með myglu,“ segir Ingólfur Þórisson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landspítalans. „Það eru rakaskemmdir víða og mygla í húsum okkar og það er óviðunandi að sjúkrahús þurfi að eiga í slíkum vanda.“ Heildarfjárþörf Landspítalans til viðhalds bygginga er í kringum fimm milljarðar samkvæmt gögnum spítalans. Spítalinn hefur á síðustu árum unnið í viðgerðum á húsum utanhúss til að fyrirbyggja frekari skemmdir af raka. Það hefur verið stefnan síðustu misseri og að sama skapi bíða þá mikilvægar og aðkallandi innanhússviðgerðir. Fjöldi húsa spítalans er skemmdur af raka eða myglu og því þarf að ganga í það á næstu árum að fyrirbyggja frekari myglu. Sagt hefur verið frá því að um 100 starfsmenn sjúkrahússins hafa verið frá vinnu vegna myglueinkenna. Spítalinn er til húsa í um eitt hundrað byggingum. Ingólfur telur það mikilvægt að menn geri sér grein fyrir stöðu mála. „Það þarf að fara í framkvæmdir við húsin en vegna fjárskorts höfum við þurft að fresta aðkallandi verkefnum og lengja tímann sem tekur að bæta húsakost okkar. Árlega setjumst við niður með hinu opinbera og gerum grein fyrir stöðunni á húsakostinum,“ segir Ingólfur. A næsta ári verður 360 milljónum varið til utanhússframkvæmda til að verja hús fyrir rakaskemmdum en aðeins 125 milljónum varið til að gera við mygluð og ónýt hús vegna rakaskemmda.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira