Ekki fordæmi fyrir því að ríki kosti umfjöllun Garðar Örn Úlfarsson skrifar 10. desember 2016 07:00 Lilja Alfreðsdóttir, núverandi utanríkisráðherra. Ráðuneyti hennar er að endurskoða leit sína að fréttamiðli til að fjalla um þróunarmál. Vísir/Ernir
Utanríkisráðuneytið er enn að endurskoða leit sína að fréttamiðli til að fjalla um þróunarmál gegn tíu milljóna króna framlagi frá ráðuneytinu. Í nóvember var auglýst á vef Ríkiskaupa eftir „hæfum aðilum til þátttöku í auglýstu ferli er varðar vefgátt um þróunarmál, sérstaka fjölmiðlaumfjöllun um málefni sem tengjast alþjóðlegri þróunarsamvinnu og mannúðarmálum, í gegnum vefrænan fjölmiðil“. Greiða ætti tíu milljónir á ári fyrir þjónustuna. Tilgangurinn var sagður sá að auka umfjöllun frjálsra íslenskra fjölmiðla um málaflokkinn. Birta ætti minnst tvær fréttir á dag að jafnaði auk fréttaskýringa og myndbanda. „Á aðalfréttasíðu vefsins skuli að lágmarki birtast helmingur frétta/fréttaskýringa og sami fjöldi frétta á samfélagsmiðlum (Facebook),“ sagði nánar í gögnum sem tilheyrðu auglýsingunni. „Tilnefndum fréttamanni sem er starfsmaður viðkomandi fjölmiðils verður gert kleift að fara í kynnisferð til samstarfslands eða samstarfslanda og heimsækja verkefni á sviði tvíhliða þróunarsamvinnu. Sá kostnaður er borinn af ráðuneytinu,“ sagði í gögnunum. Þessi tilhögun var nokkuð harðlega gagnrýnd fyrir að ríkisvaldi væri með þessu að hafa óeðlileg áhrif á fjölmiðla. Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra afréð fljótlega að draga auglýsinguna til baka og endurskoða málið. „Ég þori ekki að segja til um hvenær henni lýkur, en tel ólíklegt að það verði fyrr en á nýju ári,“ svarar Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, aðspurð um hvernig endurskoðunin gangi. Urður segir í svari til Fréttablaðsins að ráðherra hafi í málinu samþykkt tillögur frá þróunarsamvinnuskrifstofu og laga- og stjórnsýsluskrifstofu ráðuneytisins sjálfs. „Á meðal þeirra var tillaga um að tekið yrði upp samstarf við fjölmiðil um rekstur vefgáttar um þróunarmál, að breskri og sænskri fyrirmynd,“ segir hún. Í tillögunni var lagt til að tekið yrði upp samstarf við einn fjölmiðil um sérstaka vefgátt sem helguð yrði þróunarmálum. Í nágrannalöndunum væri almennri upplýsingagjöf um þróunarmál sinnt bæði af stjórnvöldum og borgarasamtökum. „Ráðuneytið styrki viðkomandi fjölmiðil með greiðslu sem svari til árslauna eins starfsmanns og verði miðlinum innan handar um ráðgjöf og upplýsingar um efni. Ritstjórnarlegt frelsi verði hins vegar hjá viðkomandi fjölmiðli,“ segir í tillögunni. „Fyrirmyndir eru meðal annars frá Bretlandi þar sem dagblaðið The Guardian rekur myndarlega fréttaveitu um þróunarmál og upplýsingamiðlun fyrir fagfólk í þróunarsamvinnu þar sem það getur deilt þekkingu sinni með öðrum og tekið þátt í umræðum. Önnur fyrirmynd er ný vefgátt sænska dagblaðsins Dagens Nyheter um heimsmarkmiðin sem heitir einfaldlega Global Udvikling – þar sem DN auglýsti sérstaklega eftir blaðamanni til að sinna umfjöllun um heimsmarkmiðin.“ Þess má geta að hvorki The Guardian né Dagens Nyheter fá styrki frá stjórnvöldum vegna sinnar umfjöllunar um þróunarmál. The Guardian fær styrk úr sjóði Melissu og Bill Gates og Dagens Nyheter frá EJC, óháðri miðstöð um fjölmiðlun í Evrópu. Aðspurð segir Urður að utanríkisráðuneytið viti engin dæmi þess að ríkið styrki ákveðinn starfandi fjölmiðil til að fjalla um þróunarmál.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Sjá meira