Vilja afferma frá fjögur að nóttu í miðbænum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 5. desember 2016 06:00 Starfsmenn Ölgerðarinnar afferma bíl á Hverfisgötu. Fréttablaðið/Anton Brink
Ölgerðin Egill Skallagrímsson fær ekki undanþágu frá reglugerð um hávaða til að geta byrjað vörulosun í miðbæ Reykjavíkur klukkan fjögur að nóttu í staðinn fyrir klukkan sjö að morgni. „Við vildum létta á álaginu en heilbrigðisnefnd Reykjavíkur og Umhverfisstofnun lögðust gegn því og umhverfis- og auðlindaráðuneytið gerði enga rannsókn á málinu heldur tók þær umsagnir upp athugasemdalaust og hafnaði þessu,“ segir Lárus Ólafsson, lögfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu sem reka málið fyrir Ölgerðina.Lárus Ólafsson. lögmaður Samtaka verslunar og þjónustu.Synjun ráðuneytisins var kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem sagði ekki í sínum verkahring að úrskurða um ákvörðun ráðherra og vísaði málinu frá. Lárus segir að umhverfisráðuneytið hafi hvorki virt rannsóknarskyldu sína né andmælarétt Ölgerðarinnar með því að byggja niðurstöðu sína á umsögnum heilbrigðisnefndar Reykjavíkur og Umhverfisstofnunar án þess að kynna þessar umsagnir fyrir fyrirtækinu og gefa því tækifæri til að tjá sig um þær. Kvörtun hafi því verið send til umboðsmanns Alþingis. Lárus ítrekar að málið snerti ekki Ölgerðina eina og ekki aðeins vöruflutninga því mikil rútuumferð sé í miðbænum og sorphirðubílar og götusópunarvélar þurfi að komast að. „Þetta helst í hendur við takmörkun á aðgengi samhliða aukinni uppbyggingu þjónustu og verslunar í miðbænum. Það hefur verið lokað á bíla, aðkoma skert og bílastæði tekin frá,“ segir hann. Fyrirtæki hafi brugðist við með því að reyna að koma vörunum í minni einingum og þá fleiri ferðum niður í bæ. „En það nær bara að ákveðnu marki. Það er ekki hægt að hagræða mikið meira en búið er að gera nú þegar.“ Lárus segir málið hafa verið þrautagöngu milli Reykjavíkurborgar, stofnana og ríkisins. Það sé súrt að ráðuneytið hafi ekki gætt meðalhófsreglu og hafnað beiðninni án þess að kanna hvort Ölgerðin væri til í aðra tilhögun. „Menn væru jafnvel til í skoða að það yrði ekki byrjað fyrr en klukkan fimm eða sex eða að vera tvo eða þrjá daga í vikunni í staðinn fyrir fimm daga. Við vildum létta á álaginu en heilbrigðisnefnd Reykjavíkur og Umhverfisstofnun lögðust gegn því og ráðuneytið gerði enga rannsókn á því heldur tók þær umsagnir upp athugasemdalaust og hafnaði þessu,“ segir Lárus Ólafsson.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira