Stórgölluð umgjörð og veikt regluverk í ferðaþjónustu Svavar Hávarðsson skrifar 5. desember 2016 06:00 Skráðum fyrirtækjum tengdum ferðaþjónustu hefur fjölgað mikið undanfarið og langt umfram það sem sést á öðrum sviðum atvinnulífsins. Fréttablaðið/Valli
Það má segja að ferðaþjónustan heyri undir þrjú fagráðuneyti, hið minnsta, og því vantar allan fókus innan stjórnkerfisins varðandi málefni ferðaþjónustunnar. Heilt yfir býr greinin við stórgallaða umgjörð og veikt regluverk. Ábyrgð nýrrar ríkisstjórnar er mikil í að tryggja einfalda og skilvirka umgjörð fyrir eins hratt vaxandi atvinnugrein og ferðaþjónustan er. Þetta er mat Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF). Í leiðara í nýjasta fréttabréfi SAF beinir hún orðum sínum til forsvarsmanna stjórnmálaflokkanna vegna fyrirheita um aukið fjármagn til uppbyggingar innviða, velferðar- og menntamála. Það hljóti að þýða að forgangsverkefnið sé að tryggja samkeppnishæft og stöðugt rekstrarumhverfi fyrirtækjanna í landinu.Helga Árnadóttir„Hvað ferðaþjónustuna varðar þá hafa fyrirtækin tekist á við miklar launahækkanir síðustu misserin, neikvæð áhrif styrkingar íslensku krónunnar, stórgallaða umgjörð og veikt regluverk. Eftirliti með ólöglegri og svartri starfsemi er verulega ábótavant og ólíðandi að fyrirtæki í ferðaþjónustu skulu þurfa að eiga í samkeppni við þá sem ekki skila sköttum og skyldum í ríkissjóð. Ríkið verður á sama tíma að axla ábyrgð gagnvart öryggi ferðamannsins, t.a.m. er áætlað að um 30% allra gistinátta séu í leyfislausu húsnæði þar sem öryggismál eru ekki tryggð,“ skrifar Helga. Spurð til hvers hún vísar með orðunum „stórgölluð umgjörð og veikt regluverk“, segir Helga af nægu að taka en nefnir sem dæmi að ferðaþjónustan heyri nú í raun undir þrjú ráðuneyti hið minnsta. Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið, innanríkisráðuneytið vegna samgangna og umhverfisráðuneytið vitaskuld. „Svo varðar þetta leyfisveitingar – um allt kerfið; eftirliti er verulega ábótavant til dæmis gagnvart heimagistingu, ferðum upp á jökla og þess háttar. Heildstæðar upplýsingar og tölfræðigögn vantar og stofnanaumgjörðin er flókin og ferðaþjónustan oftar en ekki veikburða innan hennar,“ segir Helga og nefnir sem enn eitt dæmið að þrír þjóðgarðar eru undir þremur stofnunum með þrenn mismunandi lög. Lög um skipan ferðamála eru barn síns tíma, og ekki í takt við þá þróun sem orðið hefur í greininni. Hlutverk Stjórnstöðvar ferðamála er að rýna þessi verkefni sem er að sjálfsögðu afar aðkallandi fyrir hratt vaxandi og afar mikilvæga atvinnugrein. Ný ríkisstjórn verður að taka á þessum málum af fullum þunga á næsta kjörtímabili og tryggja einfalda umgjörð um greinina sem og regluverk,“ segir Helga.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira