Betra seint en aldrei að jafna hlut kynjanna í kvikmyndum Ólöf Skaftadóttir skrifar 5. desember 2016 06:00 Anna María Karlsdóttir Fréttablaðið/Ernir „
Ég myndi segja að þetta væri mjög eðlilegt. Þetta hefði auðvitað átt að vera svona frá stofnun Kvikmyndasjóðs – en betra er seint en aldrei,“ segir Anna María Karlsdóttir, fulltrúi Samtaka íslenskra kvikmyndaframleiðenda í Kvikmyndaráði, sem er mennta- og menningarmálaráðherra til ráðgafar um málefni kvikmynda. Í nýundirrituðu samkomulagi um stefnumótun í íslenskri kvikmyndagerð segir að tryggja eigi jafnan hlut karla og kvenna í styrkveitingum Kvikmyndasjóðs. Meðal annars verði það gert með því að veita tímabundið sérstaka handrita-, þróunar- og framleiðslustyrki til kvenna í greininni. Miklar umræður um kynjakvóta á úthlutanir úr Kvikmyndasjóði hafa staðið lengi – og fjölmargir innan greinarinnar viðrað skoðanir sínar um að slíkir kvótar eigi rétt á sér. Aðrir í faginu hafa stigið fram og sagst vera mótfallnir slíkum aðgerðum. Baltasar Kormákur lagði svo til í föstudagsviðtali Fréttablaðsins í júní í fyrra að framlög til sjóðsins yrðu aukin, potturinn stækkaður og allt sem umfram væri færi til kvenna í kvikmyndagerð. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, sagði í kjölfarið að sér þættu rökin sannfærandi og hann væri tilbúinn til að setja á tímabundinn kvóta við úthlutanir úr sjóðnum. Rök þeirra sem hafa viljað setja á kynjakvóta við úthlutanir úr Kvikmyndasjóði hafa verið sú að nokkuð auðveldara sé fyrir karlmenn í kvikmyndagerð að fjármagna verk sín, þar sem þeir hafi fengið umtalsvert meiru úthlutað í gegnum tíðina og þar af leiðandi getað búið til fleiri kvikmyndir og efni fyrir sjónvarp. Slíkt skapi snjóboltaáhrif. Þannig skipti höfuðmáli að fleiri verk eftir konur verði til, því reynsla og fyrri verk spila gjarnan stóra rullu þegar umsóknir til Kvikmyndasjóðs eru metnar. Mennta- og menningarmálaráðherra segist mjög ánægður með að samkomulagið hafi verið undirritað. „Ég er líka mjög ánægður með að það hafi náðst sátt um þessar áherslur og þessa aðferðafræði í samkomulaginu. Við vildum grípa til þessara ráðstafana til þess að við getum fengið jafnt notið hæfileika karla og kvenna í þessari listgrein,“ útskýrir Illugi.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira