Játaði að hafa ekið stolnum lögreglubíl á 129 km hraða fullur en lögregla borgar brúsann Sæunn Gísladóttir skrifar 6. desember 2016 07:00 Það var álit dómsins að lögreglustjórinn á Selfossi hafi verið vanhæfur til að fara með rannsóknina. vísir
Ríkinu er gert að greiða sakarkostnað máls þar sem maður stal bíl og keyrði undir áhrifum áfengis, vegna þess að bifreiðin, sem stolið var, hafði verið í umsjá rannsóknardeildar lögreglunnar á Suðurlandi. Fram kemur í úrskurði Héraðsdóms Suðurlands að maður hafi ruðst heimildarlaust inn á heimili og tekið þaðan lykla að bifreið, notað hana í heimildarleysi og ekið án tilskilinna ökuréttinda, undir áhrifum áfengis og á 129 kílómetra hraða á klukkustund austur Suðurlandsveg við Ingólfsfjall.Ók til Reykjavíkur og til baka Hann hafi ekki sinnt stöðvunarmerkjum lögreglu heldur ekið áfram þangað til akstur bifreiðarinnar var stöðvaður við Ölfusárbrú á Selfossi. Maðurinn játaði á sig alla sök nema hvað varðar nytjastuld og húsbrot. Lögreglustjórinn á Suðurlandi fór með rannsókn málsins en bifreiðin var í umsjá rannsóknardeildar lögreglunnar á Suðurlandi. Samkvæmt lögreglulögum mega lögreglustjórar og aðrir þeir sem fara með lögregluvald ekki rannsaka brot ef þeir eru vanhæfir til þess samkvæmt stjórnsýslulögum.Ákærunni vísað frá dómi Það er álit dómsins að lögreglustjórinn á Selfossi hafi verið vanhæfur til að fara með rannsókn á umræddum meintum nytjastuldi ákærða sem beindist að umræddri bifreið þar sem embætti lögreglustjórans var sjálft í stöðu brotaþola. Ákærunni var því vísað í heild sinni frá dómi. Ákærða verður ekki gert að greiða sakarkostnað málsins, ríkissjóður greiðir því verjanda hans 879.780 krónur. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu lögreglustjóra Vestmannaeyja hefur málið verið kært til Hæstaréttar.Uppfært klukkan 9:45Hæstiréttur felldi á föstudaginn úr gildi úrskurð héraðsdóms og vísaði málinu til efnislegrar meðferðar við Héraðsdóm Suðurlands. Úrskurðurinn var birtur á vef Hæstaréttar eftir hádegi í gær.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira