Serbar byrja vel á EM kvenna í handbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. desember 2016 19:02 Hin hollenska Danick Snelder fær hér óblíðar móttökur í leiknum. Vísir/AFP
Serbía og Holland fögnuðu sigri í fyrstu leikjum dagsins á EM kvenna í handbolta sem stendur nú yfir í Svíþjóð. Þetta var annar sigur Serba á mótinu en fyrsti sigur Hollendinga. Serbía vann tveggja marka sigur á Spáni í A-riðli, 25-23, og Holland vann níu marka sigur á Pólland í B-riðli, 30-21. Serbnesku stelpurnar hafa þar með unnið tvo fyrstu leiki sína á mótinu en Serbía vann tveggja marka sigur á Slóveníu í fyrsta leik. Serbneska liðið hefur endað í 15. sæti á síðustu tveimur stórmótum sínum (EM 2014 og HM 2015). Holland tapaði á móti Þýskalandi í fyrsta leik og þetta var því fyrsti sigur hollensku stelpnanna á Evrópumótinu. Hollenska liðið kom mörgum á óvart með því að komast alla leið í úrslitaleikinn á HM í fyrra en liðið varð í sjöunda sæti á EM fyrir tveimur árum. Pólland og Spánn eiga það aftur á móti sameiginlegt að vera bæði stigalaust á botni sinna riðla.Serbía var þremur mörkum yfir í hálfleik, 11-8, en vann síðan fyrstu fimm mínútur seinni hálfleiksins 6-1 og gerði með því nánast út um leikinn. Spánverjar gáfust ekki upp og komu með sá spennu í leikinn með því að skora þrjú mörk í röð í lokin. Serbarnir héldu út og fögnuðu sigri. Katarina Krpez Slezak var markahæst hjá Serbum með sex mörk og Jovana Stoiljković skoraði fimm mörk.Hollendingar voru einnig þremur mörkum yfir í hálfleik, 11-8, en þær hollensku voru síðan komnar í 17-9 eftir aðeins fimm mínútna leik í þeim seinni. Góð byrjun á seinni hálfleiknum braut niður pólska liðið sem tapaði seinni hálfleiknum 16-10. Lois Abbingh var markahæst hjá Hollendingum með fimm mörk en þær Debbie Bont og Michelle Goos skoruðu báðar fjögur mörk.
Handbolti Mest lesið Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Fótbolti Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Fótbolti FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Fótbolti Fleiri fréttir Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Sjá meira