Flensan fyrr á ferðinni Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 9. desember 2016 12:01 Hin árlega flensa fær marga til að hnerra. Vísir/Getty
Flensan virðist vera að fara af stað og vera fyrr á ferðinni en áður. Tveir hafa greinst með inflúensu í þessari viku. Sóttvarnarlæknir segir að von sé á meira inflúensubóluefni á heilsugæslustöðvarnar á næstunni en það hefur verið ófáanlegt á landinu um nokkurt skeið. Jafnan má gera ráð fyrir því að seinni hluta desember eða í janúar taki landsmenn að veikjast af hinni árlegu inflúensu. Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir segir að svo virðist sem hún sé þegar tekin að ganga, nokkuð fyrr en venja er. „Inflúensan greindist hérna fyrst, nokkur tilfelli, í september síðastliðnum sem var mjög snemma en síðan virtist ekki verða neitt meira úr því. Nú er aftur að bera á einstaka tilfellum og það hafa greinst núna tveir einstaklingar í þessari viku með inflúensuna þannig að spurningin er hvort að hún sé svona að fara af stað. Það er yfirleitt þannig að hún byrjar mjög hægt og hefur hægt um sig svona oft í nokkrar vikur og síðan fer hún á skrið. En hún virðist vera aðeins fyrr á ferðinni núna heldur en oft áður og það sama segja fréttir frá Evrópu í öðrum löndum. Hún er svona aðeins heldur fyrr á ferðinni en áður,“ segir Þórólfur Guðnason. Þórólfur segir að bóluefni hafi verið ófáanlegt á landinu nú um nokkurt skeið. Margir landsmenn hafa þó þegar verið bólusettir. „Það er búið að dreifa núna 65.000 skömmtum af inflúensubóluefni. Það er miklu miklu meira heldur en nokkurn tímann hefur verið gert áður einhverra hluta vegna og við eigum von á aukaskömmtum, 5.000 skömmtum, sem að verður að öllum líkindum dreift til heilsugæslunnar í næstu viku. Við eigum eftir að útfæra það aðeins nánar en planið er núna að það verði gert í næstu viku,“ segir Þórólfur Guðnason.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira