Handtekinn grunaður um að beita konu ofbeldi á heimili sínu Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 30. nóvember 2016 07:17 Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. vísir/ktd
Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Um klukkan hálf ellefu leitaði kona aðstoðar á lögreglustöðinni í Kópavogi og tilkynnti að hún hefði orðið fyrir ofbeldi á heimili sínu í Breiðholti skömmu áður. Í framhaldinu handtók lögreglan karlmann á fimmtugsaldri grunaðan um að hafa beitt konuna ofbeldi. Maðurinn var færður til yfirheyrslu, skýrsla tekin af honum og hann frjáls ferða sinna að því loknu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er málið komið í farveg. Um klukkan hálf fjögur í nótt óskaði móðir eftir aðstoð lögreglu á heimili sitt í Breiðholti vegna ölvaðrar dóttur sinnar. Lögreglan veitti umbeðna aðstoð og flutti konuna í Konukot þar sem hún fær viðeigandi umönnun. Rétt rúmlega fjögur í nótt var óskað eftir aðstoð lögreglu að BSÍ í Vatnsmýri. Þar voru tveir menn í annarlegu ástandi að valda fólki ónæði mað háttalagi sínu. Við afskipti lögreglu kom í ljós að mennirnir voru undir töluverðum áhrifum vímuefna og þar að auki með nokkurt magn fíkniefna meðferðis. Mennirnir eru rétt rúmlega tvítugir og voru þeir færðir í fangageymslu meðan mál þeirra eru rannökuð, meðal annars hvort þeir hafi ætlað efnin til dreifingar og sölu. Lögreglan handtók mann á fertugsaldri um hálf tólf á Laugavegi við Vegamótastíg. Reyndist maðurinn vera í annarlegu ástandi og með kannabisefni í fórum sínum. Maðurinn var færður til lögreglustöðvar og málið afgreitt þar. Þá hafði lögreglan fengið tilkynningu um að maður væri ósáttur og æstur við gistiskýlið á Lindargötu. Maðurinn kastaði steinum í rúður hússins og var hann handtekinn og vistaður í fangaklefa þar til af honum rennur víman. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, hefur áður komist í kast við lögin. Þá var lögreglunni tilkynnt um ofurölvi og ósjálfbjarga mann á Ingólfstorgi um ellefuleytið. Lögreglan handtók manninn sem er á sextugsaldri. Samkvæmt dagbók lögreglu var maðurinn svo ölvaður að hann gat ekki hagað sér á almannafæri. Hann var færður í fangaklefa þar til af honum rennur víman. Þá var tilkynnt um tvö innbrot í austurborginni á þriðja tímanum í nótt. Annars vegar í blómaverslun, þar sem skiptimynt var stolið og er þjófsins leitað. Hins vegar var brotist í bifreið og er málið í rannsókn.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Konan sem var borin út er látin Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira