Allt í jólapakkann á debe.is debe kynnir 30. nóvember 2016 11:30 Snjóbrettavörur og búnaður fyrir börn og unglinga hafa verið mjög vinsæl á debe.is en þar fást meðal annars snjóbretti fyrir þau allra yngstu, minnstu brettin eru áttatíu sentimetrar að lengd. MYND/BURTON
KYNNING. Burton er eitt þekktasta og vandaðasta vörumerki innan snjóbrettaheimsins, en á næsta ári eru fjörtíu ár frá því að fyrsta snjóbrettið leit dagsins ljós. Burton hefur allt frá upphafi verið leiðandi framleiðandi snjóbretta og búnaðar sem tengist þeim. DéBé Bretti og stíll ehf. er með einkaumboð fyrir Burton á Íslandi og hefur fyrirtækið rekið vefverslunina debe.is síðastliðið ár. Á síðunni er að finna breitt úrval af vörum frá Burton ásamt fleiri merkjum en áherslur fyrirtækisins eru á vörur og fatnað tengdan snjóbrettum, almennri útivist og jóga. debe.is sendir vörur út um allt land, og er enginn sendingarkostnaður á pöntunum sem eru yfir tíu þúsund krónur.Bæði snjóbretti og jóga „Hjá okkur er að finna jólagjafir fyrir alla fjölskylduna. Við erum með vandaðan fatnað allt frá sokkum og upp í útivistarfatnað sem þolir hvaða veður sem er. Auðvitað erum við með allt sem brettafólkið þarfnast og gott úrval af búnaði og fatnaði fyrir börnin. Að auki bjóðum við gott úrval af vönduðum jóga- og lífsstílsfatnaði, og frábærar jógadýnur úr hrágúmmíi,“ segir Dagný Björk Reynisdóttir, eigandi debe.is. Burton-vörumerkið er einnig með töskulínu, frá snyrtiveskjum og einföldum pokum upp í stórar brettatöskur, græjutöskur og allt þar á milli. Hægt er að fá bakpoka sem henta öllum, meðal annars sérstaklega hannaða fyrir konur, og minni bakpoka fyrir yngri kynslóðina.Breið almenn fatalína Að sögn Dagnýjar geta allir í fjölskyldunni fundið eitthvað við sitt hæfi á debe.is, og áhugi eða ástundun á snjóbrettum er alls ekkert skilyrði. „Það kemur skemmtilega á óvart hversu breið fatalínan frá Burton er. Gæði á fatnaðinum eru mikil og sérstaklega má nefna að allur útifatnaður á börn, er þannig búinn að hægt er að lengja skálmar og ermar á úlpum og buxum þannig að flíkin vex með barninu.“ Í haust- og vetrarlínunni má finna hversdagsúlpur og -jakka, goretex-útivistarfatnað með öndun og ýmsum skemmtilegum lausnum, eins og vatnshelt hulstur fyrir farsímann. „Burton tekur ábyrgð á goretex-flíkum, á líftíma þeirra en ábyrgðin nær meðal annars yfir goretex-húðina. Vandað er til vals á efnum í fatnaðinum frá Burton, og er hugað vel að smáatriðum,“ útskýrir Dagný.DéBé bretti og stíll ehf. rekur vefverslunina debe.is og er fjölskyldufyrirtæki í eigu þeirra Björgvins Hólm Birgissonar, Dagnýjar Bjarkar Reynisdóttur, Reynis Birgissonar og Birgis Arnar Tómassonar.Búnaður fyrir börn vinsæll Snjóbrettavörur og búnaður fyrir börn og unglinga hafa verið mjög vinsæl á debe.is en þar fást meðal annars snjóbretti fyrir þau allra yngstu. Minnsta brettastærðin sem fæst er áttatíu sentimetrar. „Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á útivistarfatnaðinum bæði fyrir börn og fullorðna. Parka-úlpur hafa líka komið sterkar inn en við erum með nokkrar útgáfur, fyrir konur og karla. Ýmist fylltar með dúni, sem aflað er eftir vottuðum og siðferðilega ábyrgum leiðum, eða með gervifyllingu sem er mjög hlý. Loðkragar sem eru á flíkunum eru allir úr gervifeldi,“ segir Dagný og bætir við að hettupeysur hafi líka verið vinsælar. „Sérstaklega „soft shell“ peysurnar okkar, sem eru bæði vatns- og vindheldar og eru frábærar í fjallið eða útivistina þegar sólin fer að hækka á lofti á ný, og í mildara veðri.“Sýning um helgina Um næstu helgi verður hægt að skoða hluta af vörunum sem fást á debe.is, í aðstöðu Brettafélags Hafnarfjarðar, að Flatahrauni 14. „Þar verðum við með vel valdar vörur frá Burton og stefnum á að hafa gott úrval af vörum fyrir yngri kynslóðina og útivistarfatnað fyrir fullorðna. Að sjálfsögðu eru brettin og það sem þeim tilheyrir með líka. Einnig ætlum við að vera með brot af því besta og vinsælasta í jógafatnaðinum og að sjálfsögðu dýnurnar frábæru frá JadeYoga,“ segir Dagný. Nánari upplýsingar um viðburðinn er á Facebook, debe.is pop-up í borginni.
Snjóbrettaíþróttir Mest lesið Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Menning Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Lífið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Lífið Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Lífið „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Lífið Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Samdi lagið meðan hún gekk í gegnum erfiða tíma Tónlist Fleiri fréttir Nú er rétti tíminn til að huga að útisvæðinu „Sumarið byrjar hjá okkur“ Eva Laufey segir Hagkaup tilbúið í björtustu dagana Gerðu pallinn og svalirnar að uppáhaldsstað sumarsins! Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Nespresso 40 ára: Afmælishátíð með vinningum að verðmæti milljón króna Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur sem sá besti í Evrópu Opnir fræðslufundir fyrir almenning um lífeyrismál Situr þú eins og rækja? Góð líkamsstaða byrjar á réttum stól Skóspark og Krakkadagar hjá Icewear: Gengið inn í vorið E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Infraklefar og sánur eru heilsutrendið sem allir eru að tala um Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Tryggðu þér sæti í sólinni áður en sumarið fyllist Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Skaftfellsk perla fær alþjóðlega viðurkenningu Þessi smávægilega breyting sem kom jafnvægi á líðan Icewear leggur áherslu á strangari gæðakröfur en reglugerðir kveða á um „Ég vildi að ég hefði vitað af ykkur fyrr” ,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Sjá meira