Handtekinn vegna gruns um að halda úti vefsíðu sem sýndi börn í kynferðislegum tilgangi Nadine Guðrún Yaghi skrifar 17. nóvember 2016 18:45
Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn nú síðdegis grunaður um að halda úti vefsíðu sem sýndi börn í kynferðislegum tilgangi. Hann er grunaður um kynferðislega áreitni gegn börnum, vörslu á barnaklámi og fyrir blygðunarsemisbrot. Það var lögreglan á Suðurnesjum sem handtók manninn klukkan fimm í dag á heimili hans í Keflavík. Hann er á fimmtugsaldri og er ekki íslenskur ríkisborgari. Þetta staðfestir lögreglan á Suðurnesjum. Nokkrar kærur liggja á borði lögreglunnar á Suðurnesjum vegna mannsins fyrir kynferðislega áreitni og fyrir blygðunarsemisbrot. Maðurinn er grunaður um að hafa haldið úti vefsíðu en á henni voru tugir mynda af stúlkum undir lögaldri en hann sagðist gera umræddar stúlkur út í fylgdarþjónustu. Ef ýtt var á mynd af stúlku opnaðist nýr gluggi sem innihélt gróft klám. Síðunni hefur nú verið lokað. Þá er maðurinn einnig grunaður um vörslu á barnaklámi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni verður farið fram á gæsluvarðhald yfir manninum. Málið sé í algjörum forgangi hjá lögreglunni og allt kapp lagt á að það upplýsist sem fyrst. Ekki var hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira