„Salbjörg vill búa við mannlega reisn og sitt sjálfstæði“ Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 4. nóvember 2016 18:32
Ung fötluð kona neyðist til að flytja á sambýli þrátt fyrir einlægan vilja hennar til að búa í eigin íbúð. Faðir hennar bendir á að kostnaður borgarinnar fyrir pláss á sambýli sé sambærilegur og kostnaður við að hún fái persónulega aðstoð í eigin íbúð. Forsaga málsins er að Salbjörg stefndi Reykjavíkurborg því hún fær aðeins aðstoð aðra hverja viku til að geta búið sjálf í eigin íbúð. Hinar vikurnar þarf hún því að fara í skammtímavistun.Sjá einnig: Lögsækir borgina vegna brota á réttindum dótturinnarSalbjörg tapaði málinu með þeim rökstuðningi að regluverk borgarinnar leyfi ekki hærri greiðslur til Salbjargar svo hún geti ráðið aðstoðarfólk alladaga ársins. En Salbjörg er einhverf og með aðrar undirliggjandi fatlanir sem veldur því að vikulegir flutningar eru beinlínis heilsuspillandi fyrir hana. Því neyðist hún til að flytja alfarið á sambýli ef hæstiréttur staðfestir dóminn. „Ég ætla ekki að tala illa um þann stað sem er búið að bjóða Salbjörgu. En varðandi hana persónulega og prívat þá þarf hún heilmikla nánd. Hún hefur kynnst því að búa í sinni eigin íbúð og velja sér fólk til að þjónusta hana,” segir Atli Lýðsson, faðir Salbjargar og að sambýli henti engan veginn Salbjörgu en fjölskyldan fór að skoða nýju vistaverurnar á dögunum. „Við fórum einn hring og Salbjörg vildi gjarnan flýta sér út. Hún hefur ekkert minnst á þetta síðan eða viljað um þetta tala. Hún segir bara heim og vill vera heima þegar við ræðum þessi mál við hana. Þetta er heimili hennar í hennar huga og það finnst okkur vera sterk skilaboð frá henni." Ilmur Kristjánsdóttir, formaður velferðarráðs, segist ekki geta tjáð sig um einstök mál. En í gær skrifaði hún í svari til Atla á Facebook að ríkur vilji sé til að leysa málið en lögfesta þurfi NPA til að Salbjörg geti búið heima. NPA er þjónusta sem er sérsniðin að þörfum hvers og eins. Hún skrifar að það væri mjög hjálplegt ef allir legðust á eitt að þrýsta á Alþingi að lögfesta NPA til að sveitarfélögin geti fjármagnað þjónustuna. „Okkur finnast þetta ekki gild rök. Salbjörg vill búa við mannlega reisn og sitt sjálfstæði á þeim stað sem hún vill búa. Ef borgin getur gert það fyrir sama pening og kostar að vista hana á stofnun þá eru þetta engin rök í málinu, ekki í okkar huga.”
Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir Hafnar því að hafa bolað sér inn á sjúkrastofu Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Sjá meira