Amma hrærir í blóðsúpu 31. október 2016 10:00 Blóðsúpa og brauðfingur eru á boðstólnum í Hrekkjavökupartýi Þorgrðar Hafsteinsdóttur. Þorgerður Hafsteinsdóttir
Óhugguleg hljóð munu heyrast úr bílskúr í Hafnarfirði í kvöld en fjölskylda Þorgerðar Hafsteinsdóttur tekur Hrekkjavökuna alvarlega. Húsið er skreytt hátt og lágt og amman hrærir í eldrauða blóðsúpu.„Við höfum slegið upp Hrekkjavökupartýi annað hvert ár. Byrjuðum á því fyrir mörgum árum, löngu áður en hrekkjavakan fór að festa sig að ráði í sessi hér á Íslandi. Systir mín er gift Ameríkana og hann kom með þessa hefð inn í fjölskylduna,“ segir Þorgerður Hafsteinsdóttir, hársnyrtir sem blæs til hrekkjavökuveislu í kvöld með fjölskyldunni. „Við leggjum mikinn metnað í þetta, heimilið er allt undirlagt og við tökum allavega tvo daga í að skreyta. Yfirleitt búum við til draugahús í bílskúrnum. Krökkunum finnst þetta alveg frábærlega skemmtilegt,“ segir Þorgerður. „Ég á fjóra stráka, 14, 16, 25 og 28 ára Það er enginn þeirra vaxinn upp úr þessu. Þessi 25 ára tók til dæmis að sér að græja draugahúsið síðast. Það heyrast meira að segja óhugguleg hljóð í draugahúsinu og svo var útbúinn einhver ógeðslegur karl sem lá dauður í baðkarinu. Það hefur ýmislegt verið græjað.“Þora krakkarnir í hverfinu að banka upp á? „Það var eiginlega ekkert um að krakkar færu milli húsa hér í kring fyrr en í fyrra, en þá vorum við ekki með draugahúsið, við gerum þetta bara annað hvert ár. Við verðum með hrekkjavöku í ár og tókum alla helgina í að undirbúa og skreyta,“ segir Þorgerður. „Við bjóðum gestum til okkar og hver og ein fjölskylda kemur með eitthvað ógeðslegt á matarborðið. Síðast bauð ég upp á horugan Shrek, úr grænlituðu skyri. Það hafði enginn lyst á því, sem var dálítið fyndið. Yfirleitt er líka blóðsúpa á borðum, sem er bara tómatsúpa. Mamma mín, amman í hópnum sér alltaf um að útbúa súpuna og svo bökum við brauðfingur sem við dýfum í.“
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Britney farin í meðferð Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Fleiri fréttir Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Sjá meira