Konur með 30% lægri meðaltekjur Sæunn Gísladóttir skrifar 24. október 2016 09:22 Óleiðréttur launamunur mældist 17 prósent árið 2015 en hann byggir á reglulegu tímakaupi með yfirvinnu í samræmi við aðferð evrópsku hagstofunnar Eurostat. Vísir/Getty
Árið 2015 voru konur með tæplega 30 prósent lægri atvinnutekjur en karlar en þá er átt við allar tekjur af atvinnu án tillits til vinnutíma. Samanburður á meðallaunum karla og kvenna í fullu starfi árið 2015 sýnir hins vegar um 20 prósent mun á heildarlaunum en um 14 prósent mun á reglulegum launum án yfirvinnu, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Óleiðréttur launamunur mældist 17 prósent árið 2015 en hann byggir á reglulegu tímakaupi með yfirvinnu í samræmi við aðferð evrópsku hagstofunnar Eurostat.Atvinnutekjur hæstar á aldursbilinu 45-49 ára hjá bæði körlum og konumÁrið 2015 var helmingur kvenna með lægri atvinnutekjur en 3,7 milljónir króna á ári en helmingur karla með minna en 5 milljónir króna. Meðaltekjur af atvinnu taka til allra atvinnutekna án tillits til vinnutíma en karlar vinna að jafnaði fleiri vinnustundir en konur. Meðalfjöldi vikulegra vinnustunda var að jafnaði 44,1 klukkustund hjá körlum en 35,5 hjá konum árið 2015 samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Tekjur vegna atvinnu voru árið 2015 hæstar á aldursbilinu 45 til 49 ára hjá bæði körlum og konum. Á því aldursbili voru karlar hins vegar með mun hærri atvinnutekjur að meðaltali en konur eða 8,1 milljón krónur á ári samanborið við 5,5 milljónir króna hjá konum. Vinnutími skýrir að hluta til hærri heildarlaun karla en kvenna fyrir fullt starf. Karlar í fullu starfi unnu að jafnaði meira en konur í fullu starfi og voru greiddar stundir karla að meðaltali 189 á mánuði árið 2015 en greiddar stundir kvenna 179,7 samkvæmt launarannsókn Hagstofunnar. Þannig var minni munur á launum eftir kyni ef horft er til reglulegra launa án yfirvinnu árið 2015. Konur í fullu starfi voru þá að meðaltali með 458 þúsund krónur á mánuði en karlar 534 þúsund krónur og var launamunurinn því um 14 prósent. Ef skoðuð voru regluleg laun með yfirvinnu var munurinn um 18 prósent.
Tengdar fréttir Konur leggja niður störf og krefjast jafnréttis Í dag er liðið 41 ár síðan íslenskar konur tóku höndum saman og lögðu niður störf til að krefjast launajafnréttis á við karla. 24. október 2016 07:00 Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Vara við aðskotaefni í tei Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira
Konur leggja niður störf og krefjast jafnréttis Í dag er liðið 41 ár síðan íslenskar konur tóku höndum saman og lögðu niður störf til að krefjast launajafnréttis á við karla. 24. október 2016 07:00