Innlent

Suðurlandsvegur opnaður á ný

Atli Ísleifsson skrifar
Umferð var beint um hjáleið, eða um Landveg (26) og Árbæjarveg (271), á meðan á lokuninni stóð.
Umferð var beint um hjáleið, eða um Landveg (26) og Árbæjarveg (271), á meðan á lokuninni stóð. Vísir/Pjetur
Lögreglan á Suðurlandi hefur opnað Suðurlandsveginn við Rauðalæk fyrir allri umferð á nýjan leik eftir umferðarslys sem þar varð um klukkan 10:30 í morgun.

Tveir bílar komu þar úr gagnstæðri átt og skullu saman. Einn var fluttur á sjúkrahús en ku ekki vera í lífshættu.

Umferð var beint um hjáleið, eða um Landveg (26) og Árbæjarveg (271), á meðan á lokuninni stóð.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×