Mikilvægt að tryggja jöfnun lífeyrisréttinda Höskuldur Kári Schram skrifar 14. október 2016 18:45 Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála-og efnahagsráðherra. Vísir/Anton Brink
Fjármálaráðherra segir grafalvarlegt að ekki hafi tekist að jafna lífeyrisréttindi milli vinnumarkaða í samræmi við Salek samkomulagið. Það sé óréttlátt að skattgreiðendum sé gert að tryggja óskert réttindi opinberra starfsmanna á meðan þeir sjálfir þurfi að þola skerðingar. Ekki náðist samkomulag á Alþingi um að frumvarp fjármálaráðherra um jöfnun lífeyrisréttinda á almennum og opinberum vinnuamarkaði. Frumvarpið byggði á nýgerðu samkomulagi en nokkur félög opinberra starfsmanna gagnrýndu það harðlega. Jöfnun lífeyrisréttinda er hluti af Salek-samstarfinu svokallaða og þegar það lá fyrir að Alþingi myndi ekki afgreiða frumvarpið ákváðu aðilar vinnumarkaðarins nú í vikunni að setja samstarfið á ís. Fjármálaráðherra segist skilja þá ákvörðun. „En þetta er ekki bara alvarlegt mál út af Salek viðræðunum. Þetta er líka alvarlegt mál út af afleiðingunum sem að við blasa. Nú hafa stjórnir LSR og Brúar báðar boðað miklar iðgjaldahækkun um áramótin sem að þýðir að við erum að fjarlægast markmiðið. Við erum að fjarlægjast það. Eftir að almenni markaðurinn hækkaði upp í 15,5 þá erum við að fjarlægjast það ef það gerist um áramótin,“ segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Bjarni segir að það hljóti að vera forgangsmál nýrrar ríkisstórnar að koma Salek viðræðum aftur af stað enda sé það bæði vilji ríkis og sveitarfélaga að standa við samkomulag um jöfnun lífeyrisréttinda. „Mér finnst það ósanngjarnt að hinn almenni skattgreiðandi hér á landi þurfi bæði að þola skerðingar ef illa gengur í efnahagsmálum hjá okkur og lífeyrisréttindi hans skerðast af þeim sökum en hann þurfi á sama tíma að sjá eftir sköttum sínum til að tryggja óskert réttindi opinberra starsfmanna. Þetta er ekki sanngjarnt,“ segir Bjarni. „Þess vegna höfum við verið að vinna að því að jafna réttindi milli markaða. Síðan verðum við líka að horfa á þetta í stærra samhengi. Við erum nú þegar komin með 500 milljarða loforð í B-deild LSR sem er algjörlega ófjármagnað. Þetta eru útgreiðslur sem við höfum lofað í framtíðinni, fólki inni í B-deildinni, sem við eigum eftir að sjá fram á hvernig við ætlum að standa við. Svona loforð sem eru skrifuð inn á kynslóðir framtíðarinnar verðum við að fara að hætta að gefa,“ segir Bjarni.
Mest lesið Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Erlent Fleiri fréttir Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Drengirnir fundnir heilir á húfi Sjá meira