Hrefnan í Borgarvogi aflífuð nína hjördís þorkelsdóttir skrifar 1. október 2016 13:58 Aðstæður til björgunar hefðu orðið erfiðar. mynd/guðmundur símonarson
Lögreglan í Borgarnesi hefur staðfest að hrefnan, sem strandaði í Borgarvogi við Borgarnes í morgun, hafi verið aflífuð um eittleytið í dag. Hrefnan, sem var um sjö metrar að lengd, strandaði á áberandi stað. Hún var sjáanleg frá veginum inn í Borgarnes er keyrt er úr norðurátt, skammt fyrir neðan tjaldstæðið auk þess sem hún sást frá Snæfellsnesvegi hjá Borg á Mýrum. Hópur fólks flykktist að í morgun til þess að berja dýrið augum og var lögreglan á staðnum til þess að gæta þess að fólk hætti sér ekki of nærri. Samkvæmt lögreglunni mat yfirdýralæknir aðstæður og taldi æskilegast að hrefnan yrði aflífuð. Aðstæður til björgunar hefðu verið afar erfiðar og líkur eru á að hrefnan hafi verið meidd. Hrefna er ein algengasta hvalategundin hér á landi en áætlað er að um 56 þúsund dýr séu á íslenska landgrunninu.
Tengdar fréttir Hvalur strandaði í Borgarvogi við Borgarnes Um er að ræða sjö metra langa hrefnu. 1. október 2016 11:07 Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Fleiri fréttir „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Sjá meira
Hvalur strandaði í Borgarvogi við Borgarnes Um er að ræða sjö metra langa hrefnu. 1. október 2016 11:07