Refirnir hans Erlings áfram á sigurbrautinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. október 2016 14:50 Erlingur Birgir Richardsson. Vísir/Getty
Füchse Berlin hélt sigurgöngu sinni áfram í þýska handboltanum í dag þegar liðið sótti tvö stig til Hannover. Füchse Berlin vann þá eins marks útisigur á TSV Hannover-Burgdorf, 30-29, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, 18-13. Erlingur Birgir Richardsson byrjar því frábærlega með sitt lið en Refirnir hans hafa fullt hús eftir sex fyrstu umferðirnar. Füchse Berlin var fimm mörkum yfir í upphafi seinni hálfleiks, 19-14, en þá kom skelfilegur kafli þar sem Hannover-liðið skoraði átta mörk gegn aðeins tveimur og komst einu marki yfir, 22-21. Petar Nenadić var betri en enginn á lokakaflanum en hann skoraði fjögur mörk á síðustu níu mínútunum sem Füchse Berlin vann 6-4. Bjarki Már Elísson skoraði 3 mörk úr 3 skotum í leiknum og var þriðji markahæsti maður liðsins. Bjarki Már skoraði öll mörkin sína á fyrstu 22 mínútum leiksins og kom sínu liði í 13-9 með því síðasta. Serbinn Petar Nenadić var markahæstur með 10 mörk og Svíinn Mattias Zachrisson skoraði 4 mörk. Kresimir Kozina skoraði 3 mörk eins og Bjarki Már. Rúnar Már Kárason klikkaði á báðum sínum skotum en Daninn Morten Olsen var markahæstur í hans liði með 10 mörk. Füchse Berlin og Flensburg-Handewitt eru einu liðin sem hafa ekki tapað stigi í vetur en lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í THW Kiel hafa unnið 5 af 6 leikjum sínum.
Handbolti Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Handbolti „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Handbolti Fleiri fréttir Elvar kemur inn fyrir Elvar Lærisveinar Dags spila bönnuðu lögin í klefanum Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Þarf að beisla Einar aðeins en líst vel á samstarfið Nefmæltur Einar „stórkostlegur“ eftir „ógeðslega“ daga í einangrun Þúsundir Færeyinga fögnuðu með liðinu í eftirpartýi Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu „Mér líður bara ömurlega“ Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Svona meiddist Elvar „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Elvar úr leik á EM Tvö hæfileikabúnt í Íslendingabæinn Kristianstad Danir í sjokki eftir fyrsta tapið á heimavelli í tólf ár Miðar á leikina í milliriðlinum rjúka út Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ EM í dag: Flensuleikur Jordans og athyglissjúkir dómarar Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Vitum ekki um tvo fyrstu mótherjana fyrr en annað kvöld Skýrsla Henrys: Nú er hún gamla Grýla dauð „Núna er allt betra“ Logi Geirs hefði verið sáttur með svona „hárgreiðsluskot“ „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ „Ég hef prófað þetta og þetta virkar“ „Bara vá, ég er svo glaður“ Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Tölfræðin á móti Ungverjum: Viktor lokaði í átta mínútur þegar ekkert gekk Færeyingar úr leik og Danir stigalausir í milliriðil Svartfellingar hjálpuðu alls ekki Færeyingum Kemst loksins á leik og styður Ísland til sigurs Sjá meira