Enginn stigið fram þótt fjöldi vitna eigi að hafa orðið vitni að dýraníði Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. október 2016 12:06 Lömbin á myndinni tengjast fréttinni ekki. vísir/stefán
Enginn hefur stigið fram vegna misþyrmingar á lambi í Öxnadal í Eyjafirði helgina 17. til 18. september. Matvælastofnun óskaði eftir vitnum í tilkynningu í gær og minnti á að nafnleynd væri í boði ef þess væri krafist. Mbl greindi frá málinu í gærmorgun þar sem fram kom að mýmörg vitni hefðu orðið að misþyrmingu lambsins við smölun. Einn smalanna hefði tekið örmagna lamb, gengið í skrokk á því og stappað á hálsi þess. Mörgum hefði brugðið. Sama dag hefði fundist lamað lamb í Þverárrétt og óskaði Ólafur Jónsson, héraðsdýralæknir á Akureyri í norðausturumdæmi, eftir því að slá lambið af og kryfja það svo. Eigandi þess vildi hins vegar ekki afhenda lambið. Grunur leikur á að um sama lamb sé að ræða en það hefur ekki fengist staðfest, meðal annars vegna þess að lambið fékkst ekki afhent.Ætla að fá botn í málið Ólafur segir í samtali við Vísi í dag að málið sé í stöðugri skoðun og staðan verði tekin á því í dag eða á morgun. Matvælastofnun hafi borist nafnlausar ábendingar í september um fyrrnefnda atburði og málið verið í skoðun síðan.„Við höfum leitað til fjölda manna, beðið um greinargerði, óskað eftir myndböndum og vitnum,“ segir Ólafur og greinilegt að málið er tekið afar alvarlega á þeirra borði. Það sýnir tilkynning þeirra og ósk eftir frekari vitnum í gær.„Við göngum ekkert svona út nema við teljum annað fullreynt. Það sýnir staðfestu okkar í að fá botn í þetta mál.“Málinu ekki lokiðDýralæknirinn leggur þó áherslu á að um liðinn atburð sé að ræða, ekki sé grunur um stöðugt dýraníð. Hann vildi hvorki tjá sig um það hvort farið yrði fram á að fá hræ lambsins til rannsóknar eða hvort rætt hefði verið frekar við hinn grunaða nýðing.Málið er ekki komið á borð lögreglu en Matvælastofnun vinnur að öflun gagna og hvetur vitni til að stíga fram.„Þessu máli er ekki lokið. Við gefum okkur þann tíma sem til þarf.“
Tengdar fréttir Hvetja þá sem urðu vitni að misþyrmingu á lambi í Öxnadal til að gefa sig fram Fjölmörg vitni virðast hafa orðið að dýraníði en enginn þorir að tala. Hægt er að óska eftir nafnleynd. 4. október 2016 14:21 Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Sjá meira
Hvetja þá sem urðu vitni að misþyrmingu á lambi í Öxnadal til að gefa sig fram Fjölmörg vitni virðast hafa orðið að dýraníði en enginn þorir að tala. Hægt er að óska eftir nafnleynd. 4. október 2016 14:21