Hvetja þá sem urðu vitni að misþyrmingu á lambi í Öxnadal til að gefa sig fram Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. október 2016 14:21 Lambið á myndinni tengist fréttinni ekki. Vísir/Stefán
Matvælastofnun óskar eftir vitnum að misþyrmingu á lambi við smölun sauðfjár í Öxnadal í Eyjafirði helgina 17-18. september. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og leitar vitna að atvikinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni. Talið er að fjöldi manns hafi verið viðstaddir þegar atvikið átti sér stað. Svo virðist sem fólk vilji ekki upplýsa um það sem fram fór en Matvælastofnun bendir á að vitni, eða þau sem tilkynna lýsingu á atvikinu til Matvælastofnunar, geti óskað eftir nafnleynd gagnvart öðrum en stofnuninni og lögreglu.Í frétt Mbl í dag var haft eftir fólki í Hörgársveit að einn smalamanna hefði tekið örmagna lamb, gengið í skrokk á því og stappað á hálsi þess. Mörgum hafi brugðið en ekki vitað til þess að neinn hefði tilkynnt málið til yfirvalda. Síðar sama dag fannst lamað lamb í Þverrárrétt og óskaði héraðsdýralæknir eftir því að slá lambið af og kryfja það síðan. Eigandi lambsins neitaði því og urðaði lambið sjálfur. Af þeim sökum hefði ekki verið hægt að sanna að um sama lamb hefði verið að ræða.„Ef líklegt má telja að hagsmunir viðkomandi skaðist ef greint er frá nafni hans skal fallast á ósk um nafnleynd. Ef ekki eru forsendur til þess að fallast á nafnleynd er tilkynnanda heimilt að draga tilkynningu sína til baka,“ segir í tilkynningunni. Vitni eru beðin um að senda Matvælastofnun lýsingu á atvikinu í gegnum tilkynningakerfi Matvælastofnunar á forsíðu mast.is undir Senda ábendingu, með tölvupósti á netfangið mast@mast.is eða að hafa samband við stofnunina í síma 530-4800.Í lögum nr. 55/2013 um velferð dýra segir: „Leiki grunur á að meðferð á dýrum brjóti gegn lögum þessum eða reglugerðum settum samkvæmt þeim skal sá sem verður þess var tilkynna það Matvælastofnun eða lögreglu svo fljótt sem auðið er. Sé mál tilkynnt lögreglu skal hún tilkynna Matvælastofnun um það. Matvælastofnun skal kanna hvort tilkynning sé á rökum reist.“ Framburður vitna getur skipt sköpum um það hvort hægt sé að draga þá til saka sem fara illa með dýr. Stöndum saman vörð um velferð dýra segir í tilkynningunni frá Matvælastofnun.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira