Umfjöllun og viðtöl: Akureyri - Grótta 20-21 | Akureyri enn án stiga Ólafur Haukur Tómasson skrifar 15. september 2016 21:45 Vísir
Grótta vann í kvöld sinn annan sigur í jafnmörgum leikjum er liðið gerði góða ferð til Akureyrar og lagði heimamenn að velli, 21-20. Seltirningar voru tveimur mörkum yfir eftir fyrri hálfleikinn, 11-9, og komust mest í sex marka forystu þegar lítið var eftir af leiknum, 21-15. Akureyringar náðu að hleypa spennu í leikinn með því að skora fimm mörk á lokamínútunum en komust ekki nær. Akureyri hefur því tapað fyrstu tveimur leikjum sínum á tímabilinu. Leikurinn fór frekar rólega af stað og náði í raun aldrei einhverju almennilegu flugi. Það var mikill hraði í leiknum og bæði lið voru með ágætis varnarleik mest allan leikinn en það var sóknarleikur beggja liða sem var hvað mest ábótavant hér í kvöld. Bæði lið voru að tapa boltanum klaufalega oft á tíðum og nýta skot sín fremur illa. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Grótta leiddi inn í hálfleikinn 9-10 og hefði ekki verið fyrir það að markmenn beggja liða, þeir Tomas Olason og Lárus Helgi Ólafsson, voru á tánum frá upphafi leiks þá hefðu liðin hæglega getað hellst úr lestinni snemma. Allt var í járnum fram í miðjan síðari hálfleik þegar Grótta, sem hafði þó yfirhöndina mest allan leikinn, gáfu í og náðu upp sex marka forskoti á Akureyri og virkaði sem svo að heimamenn væru komnir í þrot. Þegar um þrjár mínútur voru eftir af leiknum voru gestirnir með sex marka forystu og leiddu 15-21. Þá tók við hetjuleg barátta heimamanna sem náðu að saxa á forystuna en náðu þó ekki kreista út stig úr leiknum og endaði leikurinn 20-21 Gróttu í vil. Litháensku skytturnar í liði Akureyrar þeir Mindaugas Dumcius og Karolis Stropus voru með fjögur mörk hvor. Júlíus Þórir, Finnur Ingi, Nökkvi og Elvar voru með fjögur mörk hver fyrir Gróttu.Ingimundur: Þetta var of kaflaskipt hjá okkur „Fyrst og fremst einkar slæmur kafli í seinni hálfleik. Við vorum að klúðra ógrynni af færum - misgóð auðvitað en mörg mjög góð. Það vantar bara meiri heild í þetta hjá okkur, þetta er bara alltof kaflaskipt hjá okkur, okkur vantar fleiri mörk hægra megin. Þetta var bara alltof kaflaskipt hjá okkur og sérstaklega í seinni hálfleik,” sagði Ingimundur Ingimundarson, leikmaður og aðstoðarþjálfari Akureyrar eftir leikinn. „Við höfum fulla trú á okkur og hefðum viljað standa hér í dag með fjögur stig en því miður er það ekki þannig og eitthvað sem við verðum að bæta fyrir. Skoða okkar leik enn frekar. Við eigum svo mikið inni og það er sárast,”Gunnar: Við erum að pússla þessu saman „Ég er gríðarlega sáttur með sigur og fannst við spila frábæran varnaleik, þeir áttu erfitt með að skora og Lárus var frábær fyrir aftan vörnina. Við vorum að vinna þetta fyrst og fremst á frábærum varnarleik og góðri markvörslu,” sagði Gunnar Andrésson, þjálfari Gróttu, hæst ánægður eftir sigur sinna manna í kvöld. „Við erum að pússla þessu saman. Höfum verið í miklum meiðslum og vantað í mannskapinn. Við höfum aldrei getað hafa verið með fullt lið svo við erum svolítið í startblokkunum svo við vitum ekki hvar við erum en við ætlum okkur að vera drullu góðir þegar við komumst á skrið,” Grótta gæti verið að ná sér í mjög mikilvæg stig upp á framhaldið með því að taka stigin tvö á Akureyri og telur Gunnar að þetta muni hafa góð áhrif á sitt lið sem eigi enn eftir að sýna sitt rétta andlit. “Þetta er mjög gott fyrir okkur og gefur okkur sjálfstraust. Við erum með nýtt lið og erum að pússla þessum saman, við verðum bara betri. Leikurinn fór frekar rólega af stað og náði í raun aldrei einhverju almennilegu flugi. Það var mikill hraði í leiknum og bæði lið voru með ágætis varnarleik mest allan leikinn en það var sóknarleikur beggja liða sem var hvað mest ábótavant hér í kvöld. Bæði lið voru að tapa boltanum klaufalega oft á tíðum og nýta skot sín fremur illa. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Grótta leiddi inn í hálfleikinn 9-10 og hefði ekki verið fyrir það að markmenn beggja liða, þeir Tomas Olason og Lárus Helgi Ólafsson, voru á tánum frá upphafi leiks þá hefðu liðin hæglega getað hellst úr lestinni snemma. Allt var í járnum fram í miðjan síðari hálfleik þegar Grótta, sem hafði þó yfirhöndina mest allan leikinn, gáfu í og náðu upp sex marka forskoti á Akureyri og virkaði sem svo að heimamenn væru komnir í þrot. Þegar um þrjár mínútur voru eftir af leiknum voru gestirnir með sex marka forystu og leiddu 15-21. Þá tók við hetjuleg barátta heimamanna sem náðu að saxa á forystuna en náðu þó ekki kreista út stig úr leiknum og endaði leikurinn 20-21 Gróttu í vil. Litháensku skytturnar í liði Akureyrar þeir Mindaugas Dumcius og Karolis Stropus voru með fjögur mörk hvor. Júlíus Þórir, Finnur Ingi, Nökkvi og Elvar voru með fjögur mörk hver fyrir Gróttu. Ingimundur: Þetta var of kaflaskipt hjá okkur „Fyrst og fremst einkar slæmur kafli í seinni hálfleik. Við vorum að klúðra ógrynni af færum - misgóð auðvitað en mörg mjög góð. Það vantar bara meiri heild í þetta hjá okkur, þetta er bara alltof kaflaskipt hjá okkur, okkur vantar fleiri mörk hægra megin. Þetta var bara alltof kaflaskipt hjá okkur og sérstaklega í seinni hálfleik,” sagði Ingimundur Ingimundarson, leikmaður og aðstoðarþjálfari Akureyrar eftir leikinn. „Við höfum fulla trú á okkur og hefðum viljað standa hér í dag með fjögur stig en því miður er það ekki þannig og eitthvað sem við verðum að bæta fyrir. Skoða okkar leik en nfrekar. Við eigum svo mikið inni og það er sárast,” Gunnar: Við erum að pússla þessu saman „Ég er gríðarlega sáttur með sigur og fannst við spila frábæran varnaleik, þeir áttu erfitt með að skora og Lárus var frábær fyrir aftan vörnina. Við vorum að vinna þetta fyrst og fremst á frábærum varnarleik og góðri markvörslu.” Sagði Gunnar Andrésson, þjálfari Gróttu hæst ánægður eftir sigur sinna manna í kvöld. „Við erum að pússla þessu saman. Höfum verið í miklum meiðslum og vantað í mannskapinn. Við höfum aldrei getað hafa verið með fullt lið svo við erum svolítið í startblokkunum svo við vitum ekki hvar við erum en við ætlum okkur að vera drullu góðir þegar við komumst á skrið,” Grótta gæti verið að ná sér í mjög mikilvæg stig upp á framhaldið með því að taka stigin tvö á Akureyri og telur Gunnar að þetta muni hafa góð áhrif á sitt lið sem eigi enn eftir að sýna sitt rétta andlit. “Þetta er mjög gott fyrir okkur og gefur okkur sjálfstraust. Við erum með nýtt lið og erum að pússla þessum saman, við verðum bara betri.
Olís-deild karla Mest lesið Giftu sig á gamlársdag Handbolti Fjölskylda skíðakappans fær ekki svör fyrr en í mars Sport Lætur drauminn rætast og opnar kínverskan veitingastað Sport Hvað á Liverpool að gera með Mo Salah og Alexander Isak? Enski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikir í enska boltanum og átta manna úrslit í pílunni Sport Fyrirliðinn áreitti dómara og mátti ekki spila lokaleikinn Fótbolti „Hann sér framtíðina fyrir sér hjá Napoli“ Fótbolti „Ég mun ekki keppa við Rússa á meðan stríð er í gangi“ Sport Fílabeinsstrendingar tryggðu toppsætið í uppbótartíma Fótbolti Sjáðu allt það besta úr enska boltanum á árinu 2025 Enski boltinn Fleiri fréttir Giftu sig á gamlársdag „Feginn að þú lifðir krabbameinið af svo þú gætir séð skítaliðið þitt fara niður“ Einar Bragi og félagar áfram á toppnum Fara inn í nýja árið á toppnum Segir Ísland eiga tvo af tíu bestu í heimi Hetjuleg barátta dugði ekki gegn heimsmeisturunum Arnór stoðsendingahæstur þegar Karlskrona hoppaði upp í áttunda Elín Klara endaði árið með hundrað prósent skotleik Strákarnir komnir í úrslit á Sparkassen Óðinn bikarmeistari fjórða árið í röð Kolstad tapaði bikarúrslitaleiknum í vítakeppni Segir starfið í húfi hjá Alfreð Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Íslendingarnir í miklum ham fyrir EM Handarbrotinn og missir af úrslitaleiknum Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Elín Klara atkvæðamikil og sigursæl í jólaleiknum Birgir byrjaði rólega eftir jólafrí en fagnaði sigri Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Sjá meira