Septemberspá Siggu Kling – Tvíburi: Einhver dularfullur andi yfir þér! 2. september 2016 09:00
Elsku hjartans Tvíburinn minn. Þetta sumar er aldeilis búið að líða hratt. Þú gætir fundið fyrir smá kvíða yfir því að vetur konungur sé að ganga í garð. Það er alveg nauðsynlegt fyrir þig að að fara eitthvað og breyta rútínunni þinni því þannig getur þú stytt veturinn. Þú þarft líka að hafa eitthvað til þess að hlakka til, það heldur í þér drifkraftinum. Það er samt ekki alveg víst að þú hafir peninga til að leggja í sólarferð en það mun breytast. Það mun koma upp í hendurnar á þér möguleiki sem gerir þér kleift að hafa þennan vetur litríkan. Þú skalt passa þig á því að vera ekki að gera hluti eða haga lífi þínu þannig að þú sért að þóknast öðrum. Það gerir þig óhamingjusaman. Hafðu það alveg á hreinu að það ert þú sem skapar líf þitt. Ef þér finnst eitt augnablik að einhver annar sé að rugga bátnum og stjórna ferðinni, þá skaltu vera mjög ákveðinn og segja nei, þetta vil ég ekki. Með því yfirstígur þú þær hindranir sem geta komið upp. Þótt þú viljir ekki viðurkenna það, þá ertu svoldið að hafa áhyggjur af því hvað aðrir eru að pæla. Þú ert hræddur um að standa þig ekki nógu vel en þar er hausinn bara að blekkja þig. Þegar líða tekur á september er smá hristingur í kringum þig og töluvert álag. En um leið og þú tekur ákvörðun um að standa með þér og beita þig ekki þrýstingi, þá kemstu út úr þessu. Þú verður að athuga að þú ert einstaklega orðheppinn og þú þarft að nýta þér það. Þú hættir við eitthvert verkefni sem þú varst búinn að ákveða að halda í og þér finnst það viss ósigur. En ef þú skoðar það betur þá finnst þér það bara út af því hvaða álit aðrir hafa á þér vegna þess. Þú getur virst vera svo sterkur og kraftmikill í öllu en undir yfirborðinu ertu með lítið lóuhjarta. Það á margt eftir að breytast núna í september og sérstaklega hugmyndir sem þú hefur um lífið. Sjálfstæði er mikilvægasti krafturinn sem þú hefur og þú átt eftir að sanna fyrir öðrum hversu sjálfstæður og skapandi þú ert. Þú átt eftir að byggja frama þinn upp, sama svo sem hvað þér finnst vera frami. Þú þarft ekki að vera hræddur við að taka áhættu því þú hefur hæfileika til að sýna öðrum að þú hafir farið rétta leið. Þú þarft fyrst að trúa á orðin þín áður en þú setur þau frá þér. Það eru töluverðar sveiflur í ástinni. Þú ert mikið að spá í hvort það er þetta sem þú vilt, eða hvað viltu eiginlega? Þú þarft ekki að breyta neinu í ástamálum, þú þarft bara að gera það skiljanlegt hvað þú vilt og hvað þú ætlar að gera. Ef ástin er sönn, þá brotnar hún ekki, ef hún brotnar, þá er hún ekki sönn. Fyrir þá sem eru á lausu, þá eru sérlega margir sem hrífast af þér í næsta mánuði. Sérstaklega ef þú ert að fara í skóla eða byrja á nýjum vettvangi þar sem er nýtt fólk. Það svífur einhver dulfarfullur andi yfir þér og þú gerir þér ekki grein fyrir því hvað þú átt mikinn séns. Það eru margir í þessu merki sem eiga eftir að hefja ný ástarsambönd, hvort þau verða stutt eða löng get ég ekki séð. En allavega getur þú ekki kvartað yfir því að það sé ekkert að gerast! Knús og klapp, þín Sigga KlingFrægir Tvíburar: Ragnar Sigurðsson landsliðsmaður, Örn Árnason leikari, Óli Geir Jónsson plötusnúður, Bjarni töframaður, Hrund Þórsdóttir fréttakona, Össur Skarphéðinsson húmoristi, Johnny Depp leikari, Páll Magnússon fjölmiðlamaður, Kjartan Atli Kjartansson lífsspekúlant, Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Andri Freyr útvarpsmaður og Lýðveldið Ísland.Sigga Kling verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi klukkan 13:00 í dag og geta lesendur sent inn spurningar í athugasemdarkerfinu hér að neðan. Hægt verður að spyrja Siggu um allt á milli himins og jarðar. Einnig má senda inn spurningar á stefanp@365.is.
Stjörnuspá Siggu Kling Tengdar fréttir Septemberspá Siggu Kling – Bogmaður: Leyfðu þér að sofa aðeins meira Elsku stórkostlegi Bogmaðurinn minn. Þú ert að fara inn í tímabil þar sem allt er að falla í ljúfa löð. 2. september 2016 09:00 Septemberspá Siggu Kling – Meyja: Daðraðu eins og þú eigir lífið að leysa! Elsku hjartans Meyjan mín. Það eru aldeilis margir hlutir að fara að hreyfast í kringum þig. Þú átt eftir að þurfa að vera dálítið á tánum núna á næstunni. 2. september 2016 09:00 Stjörnuspá Siggu Kling – Sporðdreki: Það er ekki allt ríkisstjórninni að kenna! Elsku sjóðheiti Sporðdrekinn minn. Það verða aldeilis dásemdar fréttir sem þú færð þegar þú svífur inn í næstu mánuði! 2. september 2016 09:00 Septemberspá Siggu Kling – Vatnsberi: Þarft orku og umhyggju í ástinni Elsku hjartans bjartsýni Vatnsberinn minn. Nú er að duga eða drepast! Standa með sjálfum sér í framtíðarsýninni og stökkva á bólakaf út í djúpu laugina. 2. september 2016 09:00 Septemberspá Siggu Kling – Vog: Hættu að reyna að láta öllum líða vel Elsku hjartans Vogin mín. Þú ert að fara inn í tímabil upprisu núna. Þú ert hálfkvíðin þegar sumrinu er að ljúka því þú hefur áhyggjur af því að þú sért ekki búin að gera nóg. 2. september 2016 09:00 Septemberspá Siggu Kling – Steingeit: Í þér býr elsta sálin Elsku fallega Steingeitin mín. Það er svolítið algengt að það séu miklar tilfinningar og álag hjá þér í kringum árstíðaskipti; þegar veturinn byrjar, þegar vorið byrjar, þegar sumarið byrjar eða eins og núna, þegar haustið byrjar. 2. september 2016 09:00 Septemberspá Siggu Kling – Ljón: Krafturinn eykst í kringum þig Það fer að ganga betur í fjármálum þegar það haustar og þú sérð að allt reddast. 2. september 2016 09:00 Septemberspá Siggu Kling – Fiskar: Hreinskilnislegt hrós leysir ýmislegt Elsku glansandi fallegi Fiskurinn minn. Ég á reyndar að segja elsku fiskarnir mínir því fiskar eru eina merkið sem er í fleirtölu, því það eru alltaf tveir fiskar. 2. september 2016 09:00 Septemberspá Siggu Kling – Hrútur: Ástríðan er allt í kring Elsku hrausti Hrúturinn minn. Nú er að koma þitt tímabil, þótt sumarið hafi verið ágætt, þá verður þessi vetur þér afdrifaríkur og minnisstæður. 2. september 2016 09:00 Mest lesið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ Lífið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Lífið „Ég var mjög skrítinn krakki“ Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Bryndís Líf orðin móðir Lífið Fleiri fréttir Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Sjá meira
Septemberspá Siggu Kling – Bogmaður: Leyfðu þér að sofa aðeins meira Elsku stórkostlegi Bogmaðurinn minn. Þú ert að fara inn í tímabil þar sem allt er að falla í ljúfa löð. 2. september 2016 09:00
Septemberspá Siggu Kling – Meyja: Daðraðu eins og þú eigir lífið að leysa! Elsku hjartans Meyjan mín. Það eru aldeilis margir hlutir að fara að hreyfast í kringum þig. Þú átt eftir að þurfa að vera dálítið á tánum núna á næstunni. 2. september 2016 09:00
Stjörnuspá Siggu Kling – Sporðdreki: Það er ekki allt ríkisstjórninni að kenna! Elsku sjóðheiti Sporðdrekinn minn. Það verða aldeilis dásemdar fréttir sem þú færð þegar þú svífur inn í næstu mánuði! 2. september 2016 09:00
Septemberspá Siggu Kling – Vatnsberi: Þarft orku og umhyggju í ástinni Elsku hjartans bjartsýni Vatnsberinn minn. Nú er að duga eða drepast! Standa með sjálfum sér í framtíðarsýninni og stökkva á bólakaf út í djúpu laugina. 2. september 2016 09:00
Septemberspá Siggu Kling – Vog: Hættu að reyna að láta öllum líða vel Elsku hjartans Vogin mín. Þú ert að fara inn í tímabil upprisu núna. Þú ert hálfkvíðin þegar sumrinu er að ljúka því þú hefur áhyggjur af því að þú sért ekki búin að gera nóg. 2. september 2016 09:00
Septemberspá Siggu Kling – Steingeit: Í þér býr elsta sálin Elsku fallega Steingeitin mín. Það er svolítið algengt að það séu miklar tilfinningar og álag hjá þér í kringum árstíðaskipti; þegar veturinn byrjar, þegar vorið byrjar, þegar sumarið byrjar eða eins og núna, þegar haustið byrjar. 2. september 2016 09:00
Septemberspá Siggu Kling – Ljón: Krafturinn eykst í kringum þig Það fer að ganga betur í fjármálum þegar það haustar og þú sérð að allt reddast. 2. september 2016 09:00
Septemberspá Siggu Kling – Fiskar: Hreinskilnislegt hrós leysir ýmislegt Elsku glansandi fallegi Fiskurinn minn. Ég á reyndar að segja elsku fiskarnir mínir því fiskar eru eina merkið sem er í fleirtölu, því það eru alltaf tveir fiskar. 2. september 2016 09:00
Septemberspá Siggu Kling – Hrútur: Ástríðan er allt í kring Elsku hrausti Hrúturinn minn. Nú er að koma þitt tímabil, þótt sumarið hafi verið ágætt, þá verður þessi vetur þér afdrifaríkur og minnisstæður. 2. september 2016 09:00