Ola Lindgren hættur | Kristján og Mats Olsson líklegastir til að taka við Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. ágúst 2016 20:30 Hvor verður fyrir valinu? vísir/epa
Ola Lindgren er hættur sem þjálfari sænska karlalandsliðsins í handbolta. Þar með aukast líkurnar á að Kristján Andrésson, fyrrverandi þjálfari Guif, verði næsti landsliðsþjálfari Svíþjóðar.Sjá einnig: Svíar vilja íslenskan landsliðsþjálfaraSamkvæmt Aftonbladet eru Kristján og Mats Olsson líklegastir til að taka við sænska landsliðinu sem olli miklum vonbrigðum á Ólympíuleikunum í Ríó. Kristján vildi lítið ræða þennan möguleika í samtali við Aftonbladet í gær. „Ég hef ekkert að segja um þetta,“ sagði Kristján sem viðurkenndi þó að það yrði erfitt að segja nei við starfi sem þessu. „Ef það kæmi til þess að mér yrði boðið þetta tækifæri þá hefði ég auðvitað áhuga. Það væri erfitt að hafna slíku tilboði.“ Kristján, sem er 35 ára, starfaði hjá Guif í áratug, fyrst sem aðstoðarþjálfari og svo sem aðalþjálfari. Hann hætti störfum hjá félaginu eftir síðasta tímabil. Kristján kom fyrst til Guif sem leikmaður en hellti sér út í þjálfun eftir að hnémeiðsli bundu enda á feril hans. Hann lék 13 A-landsleiki fyrir Ísland og fór með íslenska landsliðinu á Ólympíuleikana í Aþenu 2004. Mats Olsson stóð lengi í marki sænska landsliðsins en hann lék tæplega 300 landsleiki á árunum 1979-1997. Hann hefur starfað við þjálfun síðan hann lagði skóna á hilluna.
Handbolti Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Fótbolti Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti Fleiri fréttir Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Sjá meira