Einstaklega gott berjaár Sæunn Gísladóttir skrifar 30. júlí 2016 06:00 Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og berjasérfræðingur, segir árið 2016 einstakt til berjatínslu. „
Það lítur alveg einstaklega vel út með sprettuna og má segja nánast alls staðar á landinu,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og berjasérfræðingur. „Það er enn ráðlagt að handtína bláberin og aðalbláberin, það er misjafnt hvernig þau spretta. Á norðanverðu Snæfellsnesi voru aðalbláber orðin þroskuð víða fyrir svona viku en bláber áttu talsvert í land. En á Stöðvarfirði voru bláberin á undan. Á báðum stöðum eru góð krækiber og þó enn sé ekki kominn ágústmánuður er alveg óhætt að fara að taka til ílát og fara að koma sér í berjamó,“ segir hann. Sveinn Rúnar segir að einn af höfuðþáttunum sem skýri hversu lífleg sprettan er í ár sé hitinn í vor. „Maímánuður sló hitamet hjá okkur og júnímánuður var líka góður.“ Hann segir að verið sé að tína fyrr heldur en venjulega. „Þetta er mikil spretta og ætlar að verða einstaklega gott berjaár, og langt berjatímabil. Það er ekki bara hvað vorið var gott og þetta fór vel af stað, heldur hefur sumarið verið svo hlýtt út um allt land, það hefur sannarlega sitt að segja,“ segir Sveinn Rúnar. Hann segir erfitt að vita hversu langt berjaárið verði, næturfrostin bindi venjulega enda á berjasprettuna, en hægt er að tína langt fram í október.Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Fleiri fréttir Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Sjá meira