Bronsdrengirnir ætla sér stóra hluti á EM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. júlí 2016 19:36
Strákarnir í U-20 ára landsliði Íslands í handbolta héldu í dag til Danmerkur þar sem þeir taka þátt á EM. Þetta lið náði frábærum árangri í fyrra þegar það vann Opna Evrópumótið í Svíþjóð og lenti í 3. sæti á HM í Rússlandi. Ísland er í sterkum riðli með Slóveníu, Rússlandi og Spáni en tvö efstu liðin komast áfram í milliriðil. „Það er nánast orðin venja í íslenskum íþróttum að gæla vel við það að fara alla leið. Og við stefnum á það,“ sagði Ólafur Stefánsson í samtali við Guðjón Guðmundsson í kvöldfréttum Stöðvar 2. Ólafur þjálfar U-20 ára liðið ásamt Sigursteini Arndal. Ólafur segir íslenska liðið vel mannað og líkamlega sterkt. „Þetta er nánast sami hópur og síðast. Fyrstu 7-9 eru allir komnir yfir 100 kg. Það eru styrkleikarnir og svo eru þetta góðir handboltamenn. En ætli aðalstyrkleikinn sé ekki karakterinn, það var það síðast,“ sagði Ólafur en íslenska liðið spilar afar öfluga 5-1 vörn. „Fyrsta vörnin okkar er Eyjavörnin sem skilaði sér mjög vel á síðasta móti. Svo eigum við 6-0 vörn, sem við spilum líka mjög vel, í bakhöndinni.“ Ísland mætir Rússum í fyrsta leik sínum á fimmtudaginn. Daginn eftir mæta íslensku strákarnir gríðarsterku liði Slóveníu sem var það eina sem vann Ísland á HM í fyrra. Á sunnudaginn mæta strákarnir svo Spáni í lokaleik sínum í riðlinum. Allir leikirnir hefjast klukkan 18:00 að íslenskum tíma.
Handbolti Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti Elvar kemur inn fyrir Elvar Handbolti Fleiri fréttir Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Haukakonur upp í þriðja sætið Strákarnir hans Dags fengu skell Elín Rósa var atkvæðamikil þegar Blomberg-Lippe fór á toppinn Liðið sem fylgdi Íslandi á HM náði ekki að vinna leik EM í dag: Liðsstyrkur og meiðsli í Malmö Elvar kemur inn fyrir Elvar Lærisveinar Dags spila bönnuðu lögin í klefanum Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Þarf að beisla Einar aðeins en líst vel á samstarfið Nefmæltur Einar „stórkostlegur“ eftir „ógeðslega“ daga í einangrun Þúsundir Færeyinga fögnuðu með liðinu í eftirpartýi Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu „Mér líður bara ömurlega“ Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Svona meiddist Elvar „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Elvar úr leik á EM Tvö hæfileikabúnt í Íslendingabæinn Kristianstad Danir í sjokki eftir fyrsta tapið á heimavelli í tólf ár Miðar á leikina í milliriðlinum rjúka út Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ EM í dag: Flensuleikur Jordans og athyglissjúkir dómarar Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Vitum ekki um tvo fyrstu mótherjana fyrr en annað kvöld Skýrsla Henrys: Nú er hún gamla Grýla dauð „Núna er allt betra“ Logi Geirs hefði verið sáttur með svona „hárgreiðsluskot“ „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Sjá meira