Fernir tvíburar komu í heiminn á fimmtudag nadine guðrún yaghi skrifar 16. júlí 2016 07:00 Það má segja að þetta hafi verið stelpudagur en tólf stúlkur fæddust. Hér má aftur á móti sjá nýfædda tvíburabræður. vísir/ernir „
Þetta bjargaðist nú einhvern veginn eins og það gerir alltaf,“ segir Birna Gerður Jónsdóttir, yfirljósmóðir á Landspítala, en þann 14. júlí fæddust nítján börn og þar af fernir tvíburar á spítalanum. „Við erum orðnar svo gamlar að við munum bara ekki alveg hvað metið var en þetta er allavega mjög nálægt því,“ segir Birna og hlær. Á fimmtudaginn var sem sagt mikið annríki á fæðingardeildinni. Af tvíburapörunum fjórum fæddist þó einn tvíburi rétt eftir miðnætti á fimmtudeginum og er því fæddur þann 15. júlí. „Það gerist ekki á hverjum degi að það fæðist fernir tvíburar,“ segir Birna Gerður og bætir við að meiri áhætta fylgi tvíburafæðingum. „Það auðveldaði okkur ekki fyrir að það var svona mikið af tvíburum enda koma fleiri fagaðilar að þannig fæðingum. Það er í raun meiri vinna að sinna svoleiðis fæðingum.“ Birna Gerður segir að allt hafi gengið vel en að það hafi þurft að kalla út mannskap. „Þetta er kannski ekki beint besti tíminn til að ná í fólk en einn þriðji af starfsfólkinu okkar er í sumarfríi,“ segir hún og útskýrir að það sé auðveldara að fá fólk til vinnu á öðrum tímum en í miðjum júlí. Meirihluti barnanna sem fæddust er stúlkur eða tólf talsins. Þá fæddust sjö drengir. „Það má segja að þetta hafi verið stelpudagur en stelpurnar voru í miklum meirihluta,“ segir hún. Birna Gerður vill meina að ástæða þess að allt hafi gengið vel sé hversu gott starfsfólk deildarinnar er. „Það er svo frábært starfsfólk hérna og frábærar ljósmæður í þessu húsi. Það hjálpast allir að þegar það er mikið að gera og fólk er tilbúið að koma og hjálpa,“ segir Birna Gerður Jónsdóttir.
Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira