Sjá eftir Vigdísi Hauksdóttur af þingi Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 17. júlí 2016 11:44 Þeir Styrmir Gunnarsson, til vinstri og Guðni Ágústsson, til hægri, sjá á eftir Vigdísi Hauksdóttur, í miðjunni, af þingi. Vísir
Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins, og Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins, sjá báðir eftir Framsóknarkonunni Vigdísi Hauksdóttur af þingi. Þeir eru gestir Páls Magnússonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni og gátu sammælst um ágæti Vigdísar en voru fyrr í þættinum afar ósammála um sögulega skýringu orðsins miðjumoð í íslenskum stjórnmálum. „Mér fannst hún hafa fundið sína fjöl,“ sagði Guðni en brotthvarf Vigdísar kom honum á óvart. Hann sagði hana hafa verið mjög öfluga á kjörtímabilinu og nefndi það að hún hefði gegnt gríðarstóru og mikilvægu hlutverki sem formaður fjárlaganefndar þingsins. „Það er stórt embætti,“ sagði Guðni sem telur Vigdísi hafa staðið sig vel og nefndi í því samhengi hallalaus fjárlög og gott samstarf við þingmann Sjálfstæðisflokksins og varaformann fjárlaganefndar Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Þá sögðust þeir félagar jafnframt sjá mjög á eftir Frosta Sigurjónssyni, öðrum þingmanni Framsóknar sem hyggst ekki gefa kost á sér í þingkosningum í haust. „Vigdís er athyglisverður stjórnmálamaður sem aldrei hikaði og hafði sterkar skoðanir. Þingið þarf að vera eins og fótboltalið, í liðinu verður að vera fjölbreyttur hópur. Það er því mikill söknuður af henni.“Leiðinlegur mórall á þingi sem þarf að breyta Styrmir var sammála þessu. Hann var hissa á brotthvarfi Vigdísar og telur hana sterkan þingmann. Þeir félagar telja að breyta þurfi móralnum á þinginu og í samfélaginu. „Ég held að vettvangurinn, stjórnmálin, þreyti fólk,“ sagði Guðni aðspurður um hvers vegna hann héldi að Vigdís hefði hætt á þingi.Styrmir og Guðni sjá einnig á eftir Frosta.Vísir„Þegar ég byrjaði sem stjórnmálamaður sagði pabbi við mig: „Passaðu þig á einu, vertu aldrei persónulega níðingslegur,“ útskýrði hann. Hann sagði föður sinn hafa hvatt Guðna til þess að takast á við aðra þingmenn málefnalega og ræða við þá en eftir á fá sér kaffi með þeim á vinalegum nótum. „Mér finnst stjórnmálamenn nú vera vondir við hvern annan. Það er of mikið kapp. Ég er að vona að það séu að koma nýir tímar. Fólk hætti í öllum þessu persónulegu átökum.“ Styrmir sagði vanta meiri vinsemd á þingið. „Það er of mikil persónuleg heift í okkar samfélagi. Ég held það sé ekki bundið við pólitíkina eina. Ég held það sé bara mjög almennt að þetta návígi í okkar fámenna samfélagi veldur því að það verður persónuleg heift í samskiptum fólks. Svo þýða þessir nýju samskiptamiðlar að þetta kemur allt fram opinberlega. Þetta setur leiðinlegan svip á þetta samfélag sem gæti að öðru leyti verið mjög gott samfélag,“ sagði fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins. Þeir Guðni og Styrmir tókust létt á um sögulega skýringu á orðinu miðjumoð. Guðni vildi meina að Framsóknarflokkurinn hefði verið gagnrýndur mjög fyrir miðjumoð en að nú séu allir flokkar að færa sig nær miðjunni og að það teljist mjög jákvætt. Styrmir var ósammála þessu. Hann sagði að upphaflega hefðu þeir sem voru sakaðir um miðjumoð hafa verið hluti af Sjálfstæðismönnum. „Þó að Framsóknarflokkurinn hafi mögulega tekið það til sín,“ sagði Styrmir. Hér að ofan má hlusta á umræður þeirra Styrmis og Guðna en þær eru nokkuð skondnar enda var hlegið í hljóðverinu.
Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira