Áskorun að hagræða án skertrar þjónustu Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 6. júlí 2016 07:00 Velferðarsvið hefur beint sjónum að börnum og unglingum og vaxandi kvíða í aldurshópnum. NordicPhotos/Getty
Velferðarmál Í nýrri ársskýrslu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar kemur fram í ávarpi Stefáns Eiríkssonar, sviðsstjóra, að samfélagslegar breytingar vegna breyttrar aldurssamsetningar þjóðarinnar feli í sér tækifæri en sömuleiðis áskoranir. „Yfir þessa stöðu þurfum við að fara, við þurfum að fjárfesta í enn meira mæli í nýsköpun og velta fyrir okkur hvernig við mætum þeim verkefnum sem framundan eru innan þess fjárhagsramma sem ætlaður er til velferðarmála bæði hjá ríki og sveitarfélögum,“ skrifar hann í ávarpinu. Í yfirferð yfir árið 2015 segir Stefán rekstur sveitarfélaga hafa verið þungan undanfarin misseri og því hafi þurft að hagræða.Stefán Eiríksson sviðsstjóri velferðarsviðs Fréttablaðið/Valli „Það er viðvarandi áskorun að mæta þeirri hagræðingarkröfu án þess að það hafi áhrif á beina þjónustu við notendur.“ Frá árinu 2011 hafa árleg útgjöld sviðsins þó hækkað um tæpa sjö og hálfa milljón króna. Launakostnaður vegna kjarasamninga og ýmis átaksverkefni skýra að einhverju leyti þá hækkun. Stærstu kostnaðarliðirnir eru búsetuúrræði, húsaleigubætur, skrifstofurekstur sviðsins, fjárhagsaðstoð og heimaþjónusta. Áhersla var lögð á börn og ungmenni á síðasta ári og segir Stefán góðan árangur hafa náðst í forvarnarstarfi, svo eftir sé tekið á alþjóðlegum vettvangi. Til að mynda var skimað fyrir þunglyndi og kvíða hjá öllum unglingum í 9. bekk í reykvískum skólum og sáust merki um aukinn kvíða sem Stefán telur mikilvægt að takast á við með samstilltum hætti. „Ný samskiptatækni og samfélagsmiðlar hafa margar jákvæðar hliðar en þær neikvæðu eru einnig til staðar sem mikilvægt er að horfa til í þeim efnum.“
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira