Gekk berserksgang í sumarbústað á Suðurlandi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. júní 2016 09:03 Meðal þess sem kom inn á borð lögreglunnar var innbrot á Selfossi. vísir/pjetur
Lögreglan á Suðurlandi var kölluð út aðfaranótt 17. júní þar sem óskað var bráðrar aðstoðar í sumarbústað í uppsveitum Árnsessýslu vegna manns sem gekk þar berserksgang. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að maðurinn hafi skemmt húsmuni og verið ógnandi gagnvart öðru fólki í bústaðnum. Lögregla handtók manninn og var hann færður í fangageymslu þar sem hann dvaldi þar til af honum bráði. Þá var lögreglan tvisvar kölluðu út vegna hjólreiðakappa í WOW Cyclothon sem féllu af hjólum sínum á Suðurlandi. Annar þeirra féll af hjóli sínu skammt austan við Djúpá á Mýrum á föstudag. Hann var fluttur til skoðunar á heilsugæslustöðinni á Höfn þar sem kom í ljós að hann var óbrotinn en með skrámur og fann til eymsla í skrokknu. Hinn hjólreiðamaðurinn handleggsbrotnaði er hann féll af hjóli sínu á Suðurlandsvegi á móts við Ásmundarstaði í Rangárþingi. Þá varð harður árekstur um hádegi á föstudag á hringveginum við Stafafell í Lóni. Í bifreiðunum voru sjö manns, allt erlendir ferðamenn og slasaðist einn farþegi lítils háttar á höfði. Ökumaður annarar bifreiðarinnar ók af hliðarvegi í veg fyrir hina bifreiðina sem var ekið eftir hringveginum. Svo kærði kona innbrot og þjófnað í íbúð sína í fjölbýlishúsi á Selfossi. Sagðist hún sakna ýmsra hluta, til dæmis snyrtivara, fatnaðar og peninga. Ekki er vitað hver var að verki en innbrotið átti sér stað á tímabilinu frá hádegi síðastliðins miðvikudags til sama tíma á fimmtudag. Þá var lögreglan á Suðurlandi til 20 sinnum vegna slysa og umferðaróhappa í umdæminu. Tveir ökumenn voru svo kærðir fyrir akstur undir ávana- og fíkniefnum, einn fyrir ölvunarakstur og 48 fyrir hraðakstur.
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Sjá meira