Innlent

Braust inn í bílasölu

Gissur Sigurðsson skrifar
Vísir/GVA
Lögreglan fékk tilkynningu um innbrot í bílasölu í Höfðahverfi í Reykjavík um klukkan tvö í nótt en þjófurinn, eða þjófarnir, voru á bak og burt þegar hún kom á vettvang.  Ekki er vitað hverjir voru þarna á ferð og verið er að kanna hvort þeir hafa husanlega stolið bíl eða bílum, en fjöldi bíla er á planinu umhverfis viðkomandi bílasölu.

Annars var yfirleitt rólegt á höfuðborgarsvæðinu nema hvað skemmdarverk voru unnin á mótorhjóli,  sem stóð á Ingólfstorgi laust fyrir miðnætti og skömmu síðar datt karlmaður í miðbænum og þurfti aðhlynningu á slysadeild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×