Ætlar að virða lokanir á flugvellinum að vettugi ef líf liggur við gissur sigurðsson skrifar 21. júní 2016 12:47 Vísir/Baldur
Leifur Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Mýflugs, sem annast sjúkraflug í landinu, segist sjálfur myndi lenda á Reykjavíkurflugvelli ef líf lægi við, þótt völlurinn væri lokaður, og hann yrði handtekinn fyrir vikið. Völlurinn var lokaður frá klukkan níu í gærkvöldi til klukkan sjö í morgun vegna forfalla flugumferðarstjóra, og verður aftur lokaður í kvöld og nótt. Eftir því sem fréttastofa kemst næst var engin bakvakt á flugvellinum þannig að ekki hefði fengist undanþága í neyðartilviki. Þá er útlit fyrir að svo verði aftur um næstu nótt. Leifur segir að alla jafna séu um tvö til þrjú neyðarflug í viku. Líkt og staðan sé öllu sjúkraflugi beint til Keflavíkur og að ekki fáist undanþágur til að lenda í Reykjavík. Hins vegar yrði látið á undanþágurnar reyna ef um bráðatilvik væri að ræða. Aðspurður hvað flugmenn í sjúkraflugi myndu gera ef nauðsynlegt væri að komast til Reykjavíkur hið snarasta segir hann: „Ég myndi lenda prívat og persónulega ef ég væri á vakt þá nóttina. Ég yrði þá bara leiddur burt í járnum. En við látum ekki sjúklinga deyja, það gerist ekki, þó þetta sé kjarabarátta. Auðvitað höfum við samúð með flugumferðarstjórum en menn verða að líta á það þannig að þetta er fyrst og fremst kjarabarátta og menn verða að sinna neyðartilvikum,” segir Leifur. Lítið miðar í kjaraviðræðum flugumferðarstjóra við Isavia. Deiluaðilar funduðu í húsakynnum ríkissáttasemjara í gær, en fundurinn bar ekki árangur. Næsti fundur hefur verið boðaður á föstudag, en takist ekki samningar fyrir þann tíma verður deilunni vísað til gerðardóms.
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Sjá meira