Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni

Utanríkisráðherra segist sannfærð um að Ísland muni áfram ná góðum viðskiptakjörum við Bretland, fari svo að þeir yfirgefi Evrópusambandið. Rætt verður við Lilju Alfreðsdóttur, utanríkisráðherra, í kvöldfréttum Stöðvar 2 en David Cameron biðlaði til breskra kjósenda í dag að stefna ekki efnahagslegu öryggi þjóðarinnar í hættu með því að kjósa með útgöngu landsins úr Evrópusambandinu.

Í kvöldfréttum verður einnig rætt við borgarfulltrúa Framsóknar- og flugvallarvina sem segir siðanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga vega harkalega að oddvita flokksins með umfjöllun sinni um aflandsmál borgarfulltrúa.

Þá verður rætt við formann BHM í beinni útsendingu en kynbundinn launamunur hefur aukist innan bandalagsins. Við verðum einnig í beinni frá París þar sem karlalandsliðið í fótbolta undirbýr sig fyrir stórleikinn gegn Austurríkismönnum á morgun.

Þetta og meira til í kvöldfréttum Stöðvar 2, klukkan 18:30 á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar, og í beinni útsendingu á fréttavefnum Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×