Innlent

Glussaslys við Geysi

Gissur Sigurðsson skrifar
Vísir/Vilhelm
Glussi sprautaðist niður á 700 metra kafla á þjóðveginum við Geysi í Haukadal undir miðnætti þegar verið var að mála veglínur á veginn.

Málningarbúnaður merkingarbílsins virðist hafa steytt á hraðahindrun með þeim afleiðingum að glussarör sprakk. Brunavarnir Suðurlands eiga ekki búnað til að hreinsa slíkt upp og var kallað eftir hreinsunrliði frá Reykjavík, sem vann að hreinsun i alla nótt, en málið flokkast undir mengurnaslys.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×