Innlent

Leita göngumanns á Suðurnesjum

Bjarki Ármannsson skrifar
Maðurinn virðist hafa orðið viðskila við samferðafólk í gær við Sveifluháls norðan Kleifarvatns.
Maðurinn virðist hafa orðið viðskila við samferðafólk í gær við Sveifluháls norðan Kleifarvatns. Vísir/Egill Aðalsteinsson
Allar björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu og einhverjar á Suðurnesjum hafa verið kallaðar út til leitar að erlendum göngumanni.

Að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörg, virðist sem maðurinn hafi orðið viðskila við samferðafólk í gær við Sveifluháls norðan Kleifarvatns. Fólkið hafði samband við lögreglu í dag.

Reikna má með að um hundrað leitarmenn verði komnir á svæðið innan stundar en meðal annars verður leitað með drónum og á fjórhjólum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×