Samþykkja íbúðir og hafna íþróttahúsi 6. júní 2016 07:00 Kjartan Magnússon borgarfulltrúi.
Reykjavík Borgarráð samþykkti á fimmtudag að auglýsa tillögu að breytingu á deiluskipulagi lóða við Keilu-, Fjöru- og Boðagranda. Í tillögunni felst meðal annars uppbygging fjölbýlishúsa með 78 íbúðum á lóð Keilugranda 1. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks höfnuðu tillögunni og lögðu til í staðinn að lóðin yrði nýtt í þágu íþrótta- og æskulýðsstarfsemi í Vesturbænum. Þá tillögu felldi meirihlutinn. „Aðstöðuskortur háir nú þegar íþróttastarfsemi í Vesturbænum og er því mikilvægt að hún fái aukið athafnarými, ekki síst þar sem útlit er fyrir verulega þéttingu byggðar í hverfinu á næstu árum sem gæti haft í för með sér að íbúum þess fjölgi um allt að 5.500 manns eða 33 prósent,“ segir í tillögu sjálfstæðismanna. „Mér finnst þetta mikil skammsýni,“ segir Kjartan Magnússon, fulltrúi Sjálfstæðisflokks. „Það skiptir miklu máli að standa með vönduðum hætti að þéttingu byggðar þannig að innviðir séu fyrir hendi, til að mynda skólar og íþróttamannvirki. Það hefur verið langvarandi skortur á íþróttaaðstöðu í Vesturbænum sem hefur mikið verið kvartað yfir við okkur borgarfulltrúa,“ bætir Kjartan við. Lóðin sé besti kosturinn undir slíkt vegna nálægðar við KR-svæðið. Björn Blöndal, formaður borgarráðs, segir ýmsar hugmyndir hafa verið uppi um nýtingu svæðisins í gegn um tíðina. „Meðal annars voru á tímabili viðræður við KR um hvað þeir sæju fyrir sér á þessu svæði. Þær viðræður leiddu hins vegar til þess á endanum að þeir töldu að þeir gætu komið sinni uppbyggingu fyrir innan núverandi áhrifasvæðis síns,“ segir Björn. – þea
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Sjö ára dómur Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira