Segja háskólastarfi á Íslandi stefnt í voða Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 6. júní 2016 15:41 Háskólaráð Háskóla Íslands skorar á ríkisstjórnina og Alþingi að endurskoða fimm ára fjármálaáætlun sína fyrir árin 2017-2021 vísir/ernir
Háskólaráð Háskóla Íslands lýsir miklum vonbrigðum með að „háskólar verði skildir eftir í þeirri sókn til uppbyggingar innviða íslensks samfélags sem fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2017-2021 felur í sér.“ Ályktun þess efnis var samþykkt einróma á fundi háskólaráðs Háskóla Íslands 2. júní síðastliðinn. Í henni segir að þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir verulegri heildarútgjaldaaukningu í ríkisfjármálaáætlun eigi það ekki við um fjárveitingar til háskóla- og rannsóknarstarfs. „Í fjárhagsáætlun Háskóla Íslands sem staðfest var af mennta- og menningarmálaráðuneytinu í febrúar sl. er gert ráð fyrir 300 m.kr. rekstrarhalla á yfirstandandi ári. Því er ljóst að starfsemi Háskólans hvílir á mjög veikum fjárhagslegum grunni og er henni stefnt í bráða hættu nema til komi auknar fjárveitingar,“ segir í ályktuninni. Vitnað er til stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar þar sem sagt er að ákvæðum samings um Aldarafmælissjóð Háskóla Íslands verði fylgt en sjóðurinn hefur það að meginmarkmiði að tekjur Háskóla Íslands verði sambærilegar við tekjur háskóla á öðrum Norðurlöndum. „Ítrekað hefur réttilega komið fram í orðum mennta- og menningarmálaráðherra að háskólastigið á Íslandi sé verulega vanfjármagnað. Þetta staðfestir samanburður við háskóla á Norðurlöndum og skýrslur OECD um fjármögnun háskólanáms með óyggjandi hætti,“ segir ennfremur í ályktuninni að samþykkt stefna og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs geri ráð fyrir að framlag á hvern háskólanema skuli vera sambærilegt við það sem gerist á Norðurlöndunum. „Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2017-2021 er ekkert sem styður við þessa samþykkt, nema ætlunin sé að fækka nemendum sem eiga kost á háskólanámi hérlendis um mörg þúsund og halda fjárveitingum óbreyttum og/eða hefja almenna töku skólagjalda,“ segir í ályktuninni. Skorar háskólaráð á ríkisstjórnina og Alþingi að endurskoða fimm ára fjármálaáætlun sína fyrir árin 2017-2021.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira