Brynjar sakar skólafulltrúa um frekju og dylgjur Jakob Bjarnar skrifar 8. júní 2016 10:07 Brynjar gefur ekkert fyrir úrsögn Ragnars Þórs úr skólanefnd Borgarholtsskóla.
Brynjar Níelsson alþingismaður telur úrsögn Ragnars Þórs Pétursson kennara úr skólanefnd Borgarholtsskóla orka tvímælis og segir hann í raun gera sig sekan um það hið sama og hann vill gagnrýna.Málavextir eru þeir að Ragnar Þór Pétursson kennari, skrifaði afdráttarlausan pistil á Stundina þar sem hann telur ráðningu Ársæls Guðmundssonar í stöðu skólameistara lykta af klíkustarfsemi Sjálfstæðisflokksins. Ráðning hans hafi verið fyrirfram ákveðin af meintum vini hans Illuga Gunnarssyni menntamálaráðherra, en Ársæll hefur að undanförnu sinnt sérverkefnum innan menntamálaráðuneytisins. Hún sé þvert á við ráðgefandi álit skólanefndar skólans sem Ragnar Þór boðaði svo að hann hefði sagt sig úr, vegna þessa gerræðis. Brynjar Níelsson alþingismaður hefur nú risið upp til varnar Illuga og vandar Ragnari Þór ekki kveðjurnar. „Ragnar Þór virðist ósáttur við að Ársæll, „innanbúðarmaður“ í ráðuneytinu, skyldi ráðinn en ekki sá sem skólanefndin mælti með. Ragnar gleymir þó alveg að nefna að sá sem skólanefndin mælti með var innanbúðarmaður hjá henni,“ skrifar Brynjar og gefur svo í síðar í pistlinum. „Nú var Ársæll ráðinn í stöðu skólameistara á grundvelli miklu faglegra og ítarlegra mats en skólanefndinni var fært að gera. Ekki vitað til þess að Ársæll sé tengdur Sjálfstæðisflokknum en hann mun hafa sinnt einhverjum trúnaðarstörfum fyrir Vg í bæjarmálapólitík. Því eru það ómerkilegar dylgjur að ráðningin angi af pólitískri spillingu. Ég held því að uppsögn Ragnars Þórs úr skólanefnd Borgarholtsskóla angi af venjulegri frekju.“ Pistil Brynjars má nálgast í heild sinni hér neðar.
Tengdar fréttir Segir ráðningu skólameistara anga af spillingu Ragnar Þór Pétursson, skólanefndarmaður í Borgarholtsskóla, segir útilokað að nýleg ráðning skólameistara hafi verið gerð á faglegum forsendum. Ragnar Þór hefur sagt sig úr skólanefndinni vegna málsins. 7. júní 2016 11:45 Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Innlent Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Erlent Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Sjá meira
Segir ráðningu skólameistara anga af spillingu Ragnar Þór Pétursson, skólanefndarmaður í Borgarholtsskóla, segir útilokað að nýleg ráðning skólameistara hafi verið gerð á faglegum forsendum. Ragnar Þór hefur sagt sig úr skólanefndinni vegna málsins. 7. júní 2016 11:45