122 laxar hafa veiðst í Norðurá á fimm dögum Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 8. júní 2016 18:06
Met veiði hefur verið í þeim ám þar sem laxveiði er hafin. Í Norðurá í Borgarfirði hafa veiðst 122 laxar á fimm dögum. „Það verður náttúrulega að segjast eins og er að laxveiðin hefur farið afar vel af stað. Við opnuðum hér á laugardaginn fyrir tæpri viku og fyrsta hollið, opnunarhollið, fékk 77 fiska sem er náttúrulega bara met. Gríðarlega skemmtilegt og fiskurinn kemur vel haldinn úr hafi. Þannig að við gátum ekki beðið um meira. Blanda fór af stað daginn eftir með feiknaveiði þannig það er mikil bjartsýni ríkjandi,“ segir Einar Sigfússon rekstrarstjóri Norðurár. Hann segir stærstu fiskana hafa verið um 95 sentimetrar. „Þetta er náttúrulega stór fiskur. Þetta er tveggja ára lax,“ segir Einar. Hann segir að það hafi líka komið smálaxar með sem teljist gæfumerki. Einar telur að þakka megi átaki Veiðimálastofnunar, þar sem fólk er hvatt til að sleppa stórum fiskum, hversu vel veiðist nú. Fiski hefur verið sleppt í miklum mæli síðastliðinn áratug nema hann sé skaddaður. Þannig er langflestum fiskum sleppt í Norðurá. „Það hrygnir meira þessum fiski í ánni fyrir bragðið og það eru fleiri seiði sem að komast á legg sem að hafa þetta gen. Sem að hafa þessa erfðaeiginleika að koma heim eftir að þeir ganga til hafs. Koma heim eftir tvö ár í hafi og eru þá 7 og upp í 15 pund. Smálaxinn, sem er eitt ár í hafi, hann er svona fjögur og upp í sjö pund. Mér finnst svona mjög nærtækt að álykta sem svo að það geti verið að þetta sé að skila sér.
Mest lesið Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Innlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Erlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Erlent Fleiri fréttir Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Sjá meira