Flóttafólk drukknaði er fiskibát hvolfdi í gær Þórdís Valsdóttir skrifar 26. maí 2016 07:00 Ítalski sjóherinn náði myndum af því er fiskiskip flóttamannanna fórst á Miðjarðarhafi í gær. Nordicphotos/AFP
Fiskiskipi hvolfdi á Miðjarðarhafinu, undan ströndum Líbíu, í gærmorgun. Hundruð flótta- og farandfólks var um borð í skipinu og talið er að í það minnsta sjö manns hafi drukknað. Skipið var á leið til Ítalíu þegar slysið varð. Skipinu hvolfdi þegar fólkið um borð hópaðist yfir á aðra hlið bátsins eftir að skip ítalska sjóhersins birtist. Ítölsku hermennirnir björguðu yfir fimm hundruð manns af fiskiskipinu. Þeir náðu myndum af því þegar skipið fór á hliðina og hundruð manna börðust fyrir lífi sínu í sjónum. Mikill straumur flóttamanna frá Afríku til Evrópu er vaxandi vandamál. Á síðustu dögum hefur hátt í sex þúsund flóttamönnum verið bjargað af ótraustum bátum í Miðjarðarhafi. Talið er að fjörutíu þúsund manns hafi verið bjargað frá áramótum. Batnandi veður er talin orsök þess að flóttamönnum hefur fjölgað ört síðustu daga. Mannúðarsamtök telja að flóttafólk leiti í auknum mæli frá Afríku til Evrópu í gegnum Líbíu eftir að samningur Evrópusambandsins gerði það að verkum að leiðin um Tyrkland varð torfarnari. Samningurinn kveður á um að allir flóttamenn sem koma í gegnum Tyrkland til Grikklands í leit að hæli eigi hættu á því að verða sendir aftur til Tyrklands. Rúmlega þrjátíu þúsund flóttamenn hafa komið til Ítalíu frá Afríku á þessu ári. Ekki er hægt að fullyrða að svo stöddu frá hvaða löndum þeir flóttamenn sem bjargað hefur verið undanfarna daga eru en talið er að meirihluti þeirra komi frá Afríkulöndunum sunnan Sahara. Sérfræðingar spá því að flóttamenn frá Írak, Sýrlandi og öðrum Mið-Austurlöndum sem leitað hafa eftir hæli í Evrópu með því að fara til Grikklands muni í auknum mæli ferðast frá Norður-Afríku til Suður-Ítalíu. Meira en milljón manns sóttu um hæli í Evrópu á síðasta ári, þar af nærri helmingur sýrlenskir ríkisborgarar.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 26. maí.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Sjá meira